Tölvuárásin stöðvar fréttaflutning á Húsavík
Örlygur Hnefill Örlygsson, ábyrgðarmaður fjölmiðilsins Húsavík.com. Samsett mynd/mbl.is/Sigurður Bogi
Ljóst er að þjónustubrestur hjá íslenska vefhýsingarfyrirtækinu 1984 ehf. hefur haft víðtæk áhrif á starfsemi fjölmargra fyrirtækja og stofnana, jafnt hér á landi og erlendis.
Meðal þeirra sem hafa orðið fyrir barðinu á þjónustubrestinum er norðlenski fréttamiðillinn Húsavík.com, en vefsíða þeirra hefur legið niðri frá því á föstudag, á sama tíma og mörg stór mál eru á döfinni í sveitarfélaginu.
1984 er eitt stærsta vefhýsingarfyrirtæki landsins, ef ekki það stærsta, og eins og hefur verið greint frá varð það fyrir umfangsmikilli tölvuárás á föstudag og stöðvaði alla þjónustu sína í kjölfarið.
Áhrifa gætir víða
Framkvæmdastjóri 1984 segir árásina hafa verið það umfangsmikla og vel fjármagnaða að allar líkur séu á því að erlent þjóðríki standi að baki henni. Þá sé allt kapp lagt í að koma þjónustu fyrirtækisins aftur í gang.
Áhrifanna gætir víða en auk Húsavík.com hafa vefsíður Sorgarmiðstöðvarinnar, Samtaka 78, Kvíðameðferðarstöðvarinnar, Dýralæknaþjónustu Suðurlands og endurmenntunar Landbúnaðarháskóla Íslands legið niðri frá því á föstudag.
Mörg fréttamál í gangi
„Það er mjög mikið að gerast og mörg fréttamál í gangi,“ segir Örlygur Hnefill Örlygsson, ábyrgðarmaður Húsavík.com.
„Það er verið að fara að undirrita lóðasamning vegna gagnavers á Bakka og það er verið að loka Krambúðinni á Húsavík, bara í dag að öllum líkindum,“ segir hann og bendir jafnframt á að sveitarfélagið eigi stórafmæli í þessari viku og að ástandið á samkomuhúsinu á Húsavík sé ekki gott.
„Það eru mörg stór mál í gangi og það er ekkert hægt að flytja fréttir, sem er náttúrulega ansi erfitt,“ segir hann.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/48/1694812.jpg)