Vilhjálmur gefur Solaris verðlaunaféð

Vilhjálmur Þorsteinsson og Sema Erla.

Vilhjálmur Þorsteinsson og Sema Erla. Samsett mynd

Vilhjálmur Þorsteinsson, forstjóri Miðeindar, sem hlaut á dögunum verðlaun Jónasar Hallgrímssonar fyrir framlag til íslenskunnar, ætlar að gefa verðlaunaféð til samtakanna Solaris með sérstakri heimild til að þau megi ganga til málsvarnar Semu Erlu Serdaroglu, forystukonu samtakanna.

Frá þessu greinir Vilhjálmur í færslu á Facebook-síðu sinni en honum skilst að fjárupphæðin sé að minnsta kosti 500 þúsund krónur.

„Ég hugsaði í smástund hvað ég ætti að gera við peningana en rétta niðurstaðan birtist hrein og tær,“ skrifar Vilhjálmur.

„Verðlaunaféð rennur til samtakanna Solaris, með sérstakri heimild til að þau megi ganga til málsvarnar Semu Erlu forystukonu samtakanna og eftir atvikum til greiðslu fjársekta sem hún kann að vera dæmd til að greiða vegna starfa sinna fyrir samtökin.“

Aðalmeðferð á morgun

Sema Erla hefur verið ákærð fyrir brot á lögum um opinberar fjársafnanir en málið varðar landssöfnun Solaris árið 2024 til að bjarga fólki frá Gasasvæðinu sem átti rétt á fjölskyldusameiningu hér á landi.

Aðalmeðferð í málinu fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun en Vilhjálmur telur málið hafa einkennst af ofsóknum gegn Semu.

„Sema Erla og Solaris hafa sætt ofsóknum manna úti í bæ, og því miður einnig lögreglu og saksóknara, fyrir þá meintu sök að hafa safnað fé til að forða palestínskum fjölskyldum með íslensk dvalarleyfi úr bráðri lífshættu á Gaza, meðan þáverandi yfirvöld sátu á höndum sér og gerðu lítið sem ekkert,“ skrifar hann.

„Þegar fólk er ofsótt af opinberu ákæruvaldi fyrir hugrekki sitt og framtak til að bjarga mannslífum er eitthvað mikið að. Slíku framferði ber að mótmæla og andæfa; það er allavega ekki í mínu nafni.

Málflutningur í máli ákæruvaldsins gegn Semu Erlu fer fram á morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur. Það er því tímabært að leggja orð í belg og spyrna við fótum, í nafni mannréttinda og mannúðar.“

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab