Tileinkaði markið gamla stjóranum
Andri Lucas Guðjohnsen lét falleg orð falla um Tony Mowbray, knattspyrnustjóra Blackburn Rovers, sem þurfti að láta af störfum af heilsufarsástæðum eftir leik liðsins gegn Burnley í ensku 1. deildinni í fótbolta í gær.
Andri fagnaði marki sínu í leiknum með því að lyfta upp treyju sem á stóð: „Við stöndum með þér, Tony.“
„Ég tileinka markið einstökum manni og knattspyrnustjóra. Það sem hann hefur gert fyrir okkur á þessu tímabili er ómetanlegt. Þetta var það minnsta sem ég gat gert,“ sagði Andri Lucas í viðtali við ITV.
„Hann hringdi í okkur í myndsímtali fyrir leikinn. Það lýsir honum vel sem manneskju að hann hafi gefið sér tíma til þess í bataferlinu að sjá til þess að við værum með rétt hugarfar fyrir þennan stóra leik,“ bætti Andri við.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/53/1685384.jpg)