Stefán Einar hjólar í Þorgerði Katrínu sem talar um dylgjur – „Að hverju er verið að ýja hér?“
Ritstjórn DV
Mánudaginn 23. nóvember 2026 15:17
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Stefán Einar Stefánsson. Samsett mynd/KSJ
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra brást illa við þegar Ólafur Adolfsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði hana út í ráðningu Heiðu Kristínar Helgadóttur sem verktaka í ráðuneytinu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ólafur hafnaði því alfarið að vera með dylgjur. Stefán Einar Stefánsson, umsjónarmaður Spursmála, segir að það vanti fleiri skýringar og segir að Þorgerður Katrín hafi með þessu ráðstafað 18 milljónum króna í „einkahernað“.
„Að hverju er verið að ýja hér?“
Ólafur vakti máls á ráðningu Heiðu Kristínar í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag þar sem hann óskaði eftir að vita á hvaða lagagrundvelli hún var ráðin á, hvernig launin, sem voru rúm 1,7 milljón króna á mánuði, voru ákvörðuð og hvort það hafi mátt hækka launin munnlega.
„Það er alveg á hreinu að það var farið eftir öllum reglum þegar ráðgjafi var ráðinn,“ sagði Þorgerður Katrín. „Það var algjörlega farið eftir reglum við ráðningu Heiðu Kristínar Helgadóttur. Það sem hefur verið sagt og m.a. sett fram í Morgunblaðinu og komið fram þar er ekki rétt, þar er hallað réttu máli.“
Ólafur ítrekaði svo ósk sína um að vita um lagaákvæðin. Þá brást hún illa við:
„Ég velti líka fyrir mér öllum þessum dylgjum og aðdróttunum. Hér sagði háttvirtur þingmaður áðan: „ráðin án nokkurrar starfslýsingar“. Það var ekki þannig. Af hverju kemur háttvirtur þingmaður hingað upp og segir að svo sé þegar verkefnin voru mjög skilgreind í samningnum? Að hverju er verið að ýja hér? Ég vil líka draga fram, af því að mér finnst það skipta máli, að það var ekki ráðinn aðstoðarmaður á meðan,“ sagði hún.
„Mér finnst miður að það sé verið að vega að manneskju með hálfkveðnum vísum, með dylgjum. Mér finnst bara enginn sómi að því en í rauninni kemur mér ekkert lengur á óvart sem kemur úr ranni Sjálfstæðisflokksins þessa dagana.“ Ólafur kom svo aftur í pontu og óskaði eftir útlistun á þeim dylgjum sem hann á að hafa farið með.
Stefán Einar kallar eftir skýringum
Stefán Einar segir í færslu á Facebook að það sé merkilegt að fylgjast með framgöngu ráðherrans í þessu máli.
„Hún heldur því fram að það séu dylgjur að Heiða Kristín Helgadóttir hafi verið ráðin án starfslýsingar.
Vandinn er bara sá að Heiða Kristín sagði það sjálf. Það gerði hún í viðtali á RÚV á kosninganóttina, aðfaranótt 30. ágúst þar sem hún var stödd í kosningapartý hjá Já til að sjá,“ segir hann.
„Enn hafa engar haldbærar skýringar fengist á því af hverju ráðuneytið samdi við einkahlutafélagið sem þar að auki var með neikvætt eigið fé. Af hverju var Heiða Kristín ekki einfaldlega ráðin í tímabundið starf aðstoðarmanns ráðherra, eins og Þorgerður Katrín heldur fram að hafi í raun verið gert?“
Þá hafi heldur ekki fengist skýringar á hvernig farið var með skattaskuld Heiðu Kristínar.
„Af hverju má þetta ekki koma fram í sviðsljósið og af hverju kemst ráðherra upp með að hrópa í sífellu, aðdróttanir, dylgjur og annað af þeim toga þegar verið er að varpa ljósi á hvernig henni tókst að ráðstafa nærri 18 milljónum af skattfé ríkisins í einkahernað sinn í ESB-málum?“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗