Hlébarði of gamall til að fara í megrun – Fær að vera feitur og hamingjusamur

Kristinn H. Guðnason

Mánudaginn 23. nóvember 2026 15:30

Pan Baobao er voldugur hlébarði og líka krútt. Myndir/Instagram

Hlébarðinn Pan Babobao í dýragarðinum í Panzhihua í Kína hefur vakið mikla eftirtekt að undanförnu fyrir holdarfar sitt. Dýragarðsverðirnir segja hann of gamlan til að fara í megrun og því fái hann einfaldlega bara að vera „gamall, feitur og hamingjusamur.“

Breska blaðið The Sun greinir frá þessu.

Hlébarðar eru vanalega ekki mjög feitlagin dýr en hinn 19 ára Pan Baobao í Panzhihua dýragarðinum í suðvesturhluta Kína er þar undantekning. Eins og myndir sýna er hann í góðum holdum og er algjört krútt.

Þetta er reyndar ekki nýtt vandamál hjá hlébarðanum sem var settur á strangan megrunarkúr árið 2024. Þá missti hann mörg kíló en dýragarðsgestir hafa tekið eftir að hann hefur þyngst aftur.

Nú hafa dýragarðsverðirnir hins vegar afráðið að setja Pan Baobao á annan megrunarkúr. Ástæðan er sú að hann er einfaldlega of gamall.

Eins og fólk

Hlébarðar verða gjarnan ekki nema 10 til 15 ára gamlir og því má segja að Pan Baobao sé orðinn algjör öldungur. Hlébarðar geta í mesta lagi orðið um það bilinu 25 til 30 ára.

„Það er ekki svo að við höfum enga stjórn á mataræðinu, en dýrið er orðið gamalt og ætti ekki að vera að léttast,“ segir Zhang Songwen, talsmaður dýragarðsins. „Dýr eru eins og fólk. Þegar þau eldast verður húðin á þeim laus. Á þessu stigi er mikilvægast að viðhalda líkamsástandi þeirra og tryggja heilsu þeirra. Þau þurfa ekki aðeins að borða nægilega mikið, heldur þurfa þau einnig að fá rétta næringu.“

Við góða heilsu

Pan Baobao, sem er eitt frægasta dýragarðsdýr Kína, étur rúmlega hálft kíló af nautakjöti á dag en fær einnig kjúkling af og til. Þrátt fyrir að vera gildur um sig miðjan segir dýralæknir að hann sé við góða heilsu.

Hann er einnig nokkuð stöðugur í þyngd sinni og fær góða hreyfingu. Það er að verðirnir láta hann leika sér með stóran bolta og hlaupa í sínu afgirta svæði.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab