Færir stuðningsmönnum Arsenal jákvæð tíðindi

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, segir að meiðslin sem David Raya varð fyrir í 2-2 jafnteflinu gegn Newcastle um helgina séu ekki eins alvarleg og óttast var.

Raya meiddist á öxl og þurfti að yfirgefa völlinn á 70. mínútu, sárþjáður. Hann missir af leik Arsenal gegn Dortmund í Meistaradeildinni á morgun en þarf ekki að gangast undir aðgerð.

„Við óttuðumst eitthvað mun verra því hann réð varla við sársaukann. Útlitið eftir fyrstu myndatökur er þó mjög jákvætt. Það er engin þörf á aðgerð, sem var helsta áhyggjuefnið, því það hefði haldið honum frá keppni í marga mánuði,“ segir Arteta. 

Raya fer í frekari rannsóknir á morgun en enn er óljóst hvenær hann snýr aftur. Kepa Arrizabalaga er líklegur til að verja mark Arsenal gegn Dortmund.

Arsenal mætir Svo Manchester City í stórleik í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab