Fleiri sprengjuhótanir: Lögregla kannar tengslin

Innlent | mbl | 23.11.2026 | 15:07

Til skoðunar er hvort hótanirnar tengist sambærilegum hótunum sem bárust hér á landi fyrr í mánuðinum. mbl.is/Árni Sæberg

Í morgun bárust ýmsum stofnunum og fyrirtækjum hér á landi sprengjuhótanir í tölvupósti. Lögreglan tekur allar slíkar hótanir alvarlega og metur hvert tilvik fyrir sig, að segir í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra.

Miðað við fyrirliggjandi upplýsingar telur lögregla ekki ástæðu til frekari aðgerða að svo stöddu en fylgist áfram grannt með stöðu mála.

Til skoðunar er hvort hótanirnar tengist sambærilegum hótunum sem bárust hér á landi fyrr í mánuðinum. Ekkert bendir hins vegar til þess að þær tengist sprengjuhótunum sem borist hafa í Evrópu undanfarna daga, að segir í tilkynningunni.

Ríkislögreglustjóri leggur áherslu á að stofnanir og fyrirtæki sem fá sprengjuhótanir hafi tafarlaust samband við lögreglu í síma 112.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab