Nauðgaði andlega fatlaðri konu

Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir nauðgun, kynferðislega áreitni og brot gegn blygðunarsemi. 

Manninum er gefið að sök að hafa í fjölda skipta á árunum 2021 til 2024 brotið gegn andlega fatlaðri konu á heimili hennar. Hafi hann, án samþykkis og með ólögmætri nauðung, haft önnur kynferðismök en samfarir við konuna og áreitt hana kynferðislega með ýmsum hætti, meðal annars með því að fróa sér fyrir framan hana. 

Í ákærunni er hann sagður hafa notfært sér yfirburði sína vegna aðstöðu- og þroskamunar og traust hennar til hans vegna stöðu hans, sem þó er ekki tilgreind þar sem þær upplýsingar hafa verið afmáðar úr ákærunni. Hann er einnig sagður hafa notfært sér að konan gat ekki spornað við verknaðinum sökum andlegrar fötlunar. Einnig segir að háttsemi mannsins hafi verið til þess fallin að særa blygðunarkennd konunnar. 

Fyrir hönd konunnar er krafist miskabóta að fjárhæð þrjár milljónir króna.

Fyrirtaka var í málinu við Héraðsdóm Reykjavíkur þann 20. nóvember síðastliðinn. Þinghald er lokað.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab