Íris varar við lúmskri gildru á Black Friday – Fimm atriði sem allir ættu að hafa í huga

Svikarar undirbúa sig nú fyrir Black Friday rétt eins og verslanir og neytendur. Með ótrúlegum tilboðum, fölskum netverslunum og skilaboðum um vörusendingar reyna þeir að lokka fólk í gildrur sínar. Íris Björk Hreinsdóttir, yfirlögfræðingur Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu, varar við því að svikin séu orðin sífellt trúverðugri.

Íris skrifar aðsenda grein sem birtist á Vísi í morgun þar sem hún hvetur landsmenn til að vera á varðbergi nú þegar Black Friday er fram undan.

„Hönnunarvara á 80% afslætti. Nýjasti síminn á hálfvirði. Síðasta eintakið og aðeins tíu mínútur eftir af tilboðinu. Hver vill missa af slíkum kaupum? Það er einmitt það sem svikararnir treysta á,“ segir Íris.

Hún bendir á að þegar pósthólf og símar fyllast af tilboðum, auglýsingum og tilkynningum um vörusendingar verði auðveldara fyrir svikara að fela sig innan um raunveruleg skilaboð.

„SMS-skilaboð berast í nafni flutningafyrirtækja þar sem óskað er eftir greiðslu fárra króna í sendingargjald. Falskar netverslanir líkja eftir þekktum verslunum og auglýsingar á samfélagsmiðlum lokka fólk með ótrúlegum afslætti.“

Markmiðið sé að komast yfir kortaupplýsingar, lykilorð eða öryggiskóða, eða fá fólk til að samþykkja auðkenningu með rafrænum skilríkjum.

Gervigreind gerir svikin trúverðugri

Íris bendir á að gervigreind hafi gert svik enn meira sannfærandi. Ekki sé lengur hægt að treysta á málvillur og óvenjulegt orðalag sem vísbendingar um að eitthvað gruggugt sé á seyði. Falskar vefsíður geti jafnframt litið afar trúverðuglega út.

Eitt helsta vopn svikaranna sé þó tímapressa. Fólki sé talin trú um að tilboð renni út eftir örfáar mínútur eða að aðeins eitt eintak sé eftir.

„Tilgangurinn er að fá fólk til að bregðast við áður en það gefur sér tíma til að kanna hvort allt sé með felldu. Á stórum tilboðsdögum er þessi aðferð sérstaklega varasöm, enda eru raunveruleg tilboð oft tímabundin,“ segir Íris.

Fimm atriði sem allir ættu að hafa í huga

Íris beinir fimm hollráðum til landsmanna fyrir tilboðsdagana sem fram undan eru:

  1. Ekki láta reka á eftir þér. Gefðu þér tíma til að kanna tilboð áður en þú greiðir, sérstaklega ef afslátturinn virðist ótrúlegur.
  2. Fylgstu með færslunum þínum. Svikarar geta meðal annars reynt að taka út margar litlar fjárhæðir. Farðu reglulega yfir færslur og tilkynntu strax ef þú verður var við eitthvað óeðlilegt.
  3. Varastu falskar tilkynningar um vörusendingar. Ef óskað er eftir greiðslu sendingargjalds skaltu kanna málið beint hjá flutningafyrirtækinu.
  4. Gefðu aldrei upp lykilorð, PIN-númer eða öryggiskóða vegna óvæntra skilaboða eða símtala.
  5. Farðu varlega með rafræn skilríki. Samþykktu aldrei auðkenningu eða undirritun nema þú hafir átt frumkvæði að henni og vitir nákvæmlega hvað þú ert að samþykkja.

„Getur komið fyrir hvern sem er“

Íris leggur áherslu á að þeir sem telja sig hafa orðið fyrir svikum bregðist hratt við. Mikilvægt sé að frysta eða loka greiðslukortum ef við á, hafa tafarlaust samband við banka eða kortaútgefanda og tilkynna málið til lögreglu í gegnum netsvikagáttina.

„Það getur komið fyrir hvern sem er að láta blekkjast. Svikarar nýta sér traust, tímapressu og aðstæður þar sem fólk á síst von á svikum.“

Íris bendir að lokum á að Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu standi fyrir vitundarvakningu um netsvik í nóvember. Samtökin hafi meðal annars útbúið netsvikapróf þar sem fólk geti spreytt sig á raunhæfum dæmum og kannað hversu auðvelt sé að láta blekkjast.

„Prófið tekur aðeins nokkrar mínútur. Það gæti reynst besta fjárfestingin sem þú gerir á tilboðsdögum,“ segir hún að lokum.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab