Kryddsulta úr smiðju Middleton-fjölskyldunnar
Katrín prinsessa af Wales gaf Elísabetu II. heimalagaða kryddsultu eftir uppskrift ömmu sinnar fyrstu jólin sem hún hélt með konungsfjölskyldunni. Hér sést hún í brúðkaupi Pippu systur sinnar árið 2017. Kirsty Wigglesworth/AFP/Aðsend
Hvað gefur maður konu sem á nánast allt? Katrín prinsessa af Wales stóð frammi fyrir þeirri spurningu þegar hún hélt sín fyrstu jól með bresku konungsfjölskyldunni á Sandringham.
Í heimildarmyndinni Our Queen at Ninety sagði hún frá því að hafa ákveðið að útbúa kryddsultu eða „chutney“ eftir uppskrift ömmu sinnar. Hún hefði verið dálítið áhyggjufull en tekið eftir því að gjöfin var komin á borðið daginn eftir.
Fjölskylduuppskriftin rataði í bók
Pippa Middleton birti uppskrift að „Granny’s Marrow Chutney“ í bókinni Celebrate. Hér er sú fjölskylduuppskrift. Katrín tilgreindi ekki nákvæmlega hvaða útgáfu hún gaf drottningunni.
Chutney úr smiðju Middleton-fjölskyldunnar
Um átta 350 g krukkur.
- 1,8 kg stór, fullþroska kúrbítur, svokallaður marrow, afhýddur, fræhreinsaður og skorinn smátt
- 4 meðalstórir laukar, saxaðir
- 3 epli, afhýdd, kjarnhreinsuð og skorin smátt
- 225 g rúsínur
- 225 g steinlausar döðlur, grófsaxaðar
- 600 ml maltedik
- 900 g mjúkur púðursykur
- 1 tsk. salt
- 2 msk. malað engifer
- 2 msk. kryddblanda til súrsunar, bundin í grisjupoka
Aðferð
- Setjið öll hráefnin ásamt kryddpokanum í stóran pott og blandið saman.
- Hitið að suðu. Lækkið hitann og látið malla í 1½–2 klukkustundir, þar til blandan þykknar. Hrærið reglulega.
- Takið pottinn af hitanum og látið kólna. Fjarlægið kryddpokann og kreistið úr honum vökvann.
- Setjið í dauðhreinsaðar krukkur með edikþolnum lokum. Skiljið eftir um 1 cm af brúninni og lokið.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/47/1694784.jpg)