Klæddist 22 ára gömlum kjól móður sinnar

Sigga Ósk keppandi fyrir hönd Íslands í Miss Universe 2026 klæddist 22 ára gömlum kjól af móður sinni. Samsett mynd

Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir, betur þekkt sem Sigga Ósk, keppandi fyrir hönd Íslands í Miss Universe 2026, klæddist 22 ára gömlum kjól af móður sinni á viðburði tengdum keppninni á dögunum. Sigga Ósk fór í kjólnum í morgunmat en þegar maður er keppandi í keppni sem þessari er mikilvægt að líta vel út öllum stundum, þó að maður sé nývaknaður.

Elín María Björnsdóttir, athafnakona, rithöfundur og móðir Siggu, segir frá þessu á samfélagsmiðlum.

„Elska að hún sé í 22 ára gömlum kjól af mér. Hver hefði haldið að þessi kjóll færi alla leið í Ungfrú alheim?“ skrifar Elín María á Instagram.

Sigga Ósk deilir einnig færslu með myndum af sér í kjólnum og á einni myndanna sést hún máta kjólinn aðeins sem lítil stúlka.

Sigga Ósk mátar kjól mömmu sinnar þegar hún var lítil.

Sigga Ósk mátar kjól mömmu sinnar þegar hún var lítil. Skjáskot/Instagram

„Klæddist kjól mömmu í morgunmat. Læt fylgja mynd af mér þegar mig dreymdi um að vera prinsessa sem lítil stelpa og nú er allt að rætast. Ég og Finnland borðuðum morgunmat saman, elska hana,“ skrifar Sigga Ósk.

Undankeppnin fór fram í gærkvöldi en keppnin er haldin í San Juan í Púertó Ríkó. Úrslitakvöldið er aðfaranótt miðvikudags. Sigga Ósk varð Ungfrú Ísland í vor.

Það hefur borið á því undanfarna daga að fyrrum fegurðardrottningar bjóði dætrum sínum að klæðast gömlum kjólum. Þá var það dóttir Manuelu Ósk Morthens, sem klæddist fræga Tyson-kjól móður sinnar á söngvakeppni Verslina á dögunum. 

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab