Segir öran íbúavöxt hafa reynt á velferðarkerfið
Kristrún sagði að hagvöxtur hefði um skeið að miklu leyti byggst á fjölgun fólks í vinnuaflsfrekum greinum. mbl.is/Eyþór
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að hraður íbúavöxtur hafi stuðlað að hagvexti á undanförnum árum en jafnframt aukið álag á velferðarkerfið.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, tók undir hluta af greiningu hennar en taldi ríkisstjórnina ekki hafa brugðist við með fullnægjandi hætti.
Þetta kom fram í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. Sigmundur Davíð spurði hvaða aðgerðir ríkisstjórnin hygðist grípa til gegn verðbólgu og hvort stefna hennar leiddi til þess að hagkerfið kólnaði um of.
Kristrún sagði að hagvöxtur hefði um skeið að miklu leyti byggst á fjölgun fólks í vinnuaflsfrekum greinum. Ríkið hefði fengið auknar tekjur á sama tíma og útgjöld til velferðarmála jukust. Hún taldi slíkan hagvöxt ekki sjálfbæran til lengri tíma.
Greindi á um viðbrögðin
Sigmundur Davíð sagðist sammála ýmsu í greiningu Kristrúnar en spurði til hvaða aðgerða hún hygðist grípa. Hann hélt því fram að þeir sem hefðu flust úr landi að undanförnu hefðu einkum verið í vinnu og síðan misst hana þegar hægði á hagkerfinu.
Kristrún sagði fólksflutninga endurspegla sveigjanleika vinnumarkaðarins innan EES. Fólk kæmi til landsins þegar eftirspurn eftir vinnuafli væri mikil og hluti þess flytti aftur úr landi þegar drægi úr umsvifum. Hún sagði að hægt hefði á fólksfjölgun og að þess sæjust meðal annars merki á fasteignamarkaði.
Sigmundur Davíð sagðist sammála ýmsu í greiningu Kristrúnar en spurði til hvaða aðgerða hún hygðist grípa. Hann hélt því fram að þeir sem hefðu flust úr landi að undanförnu hefðu einkum verið í vinnu og síðan misst hana þegar hægði á hagkerfinu. mbl.is/Eyþór
Spurði hvort ætlunin væri að „frysta“ hagkerfið
Sigmundur Davíð sagði ríkisstjórnina halda sig við sömu aðferðir í baráttunni við verðbólgu og kenna öðrum um þegar árangur léti á sér standa. Hann taldi að spá Seðlabankans um minni verðbólgu byggðist á því að hagkerfið kólnaði um of. Hann spurði hvort ætlunin væri að „frysta“ hagkerfið, auka atvinnuleysi og skerða lífskjör til að ná verðbólgunni niður.
Kristrún sagði eðlilegt að hægja þyrfti á efnahagsumsvifum til að draga úr þenslu. Hún sagði atvinnuleysi erfitt fyrir þá sem yrðu fyrir því en taldi stöðuna á Íslandi skárri en í mörgum öðrum löndum. Skráð atvinnuleysi var 4,3% í október.
Seðlabankinn gerir ráð fyrir að slaki í hagkerfinu aukist fram á næsta ár og að atvinnuleysi nái þá hámarki. Bankinn spáir 1,2% hagvexti á næsta ári og að verðbólga verði komin í 3% undir lok þess.
Fjárlagatillögur fara fyrir ríkisstjórn á morgun
Kristrún sagði ríkisstjórnina ætla að halda sig við áætlun sína. Hún nefndi þak á launahækkanir þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna, fækkun ríkisstofnana og sameiningu eða niðurlagningu verkefna þeirra sem dæmi um aðhald.
Sigmundur Davíð spurði einnig hvort þingið ætti að verja næstu vikum í afgreiðslu frumvarps um innleiðingu bókunar 35 við EES-samninginn. Hann taldi að meðferð málsins á Alþingi gæti skaðað málstað Íslands í máli Eftirlitsstofnunar EFTA fyrir EFTA-dómstólnum.
Kristrún svaraði því til að tillögur um breytingar á fjárlagafrumvarpi ársins 2027 væru tilbúnar. Þær færu fyrir ríkisstjórn á morgun og yrðu í kjölfarið lagðar fyrir fjárlaganefnd Alþingis. Markmiðið væri að fjárlög næsta árs yrðu hallalaus.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
