Þorgerður segir öllum reglum hafa verið fylgt

Þorgerður Katrín sagði að ráðgjöfin hefði ekki aukið útgjöld ríkisins þar sem hún hefði á meðan látið hjá líða að ráða sér annan aðstoðarmann. Slík ráðning hefði að hennar sögn verið dýrari. mbl.is/Eyþór

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir að munnlegt samkomulag um viðbótarþóknun vegna ráðgjafar Heiðu Kristínar Helgadóttur hafi verið gert eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið 29. ágúst.

Þá hafi enn átt eftir að ljúka verkefnum í tengslum við atkvæðagreiðsluna. Viðbótarþóknunin nam 3,5 milljónum króna án virðisaukaskatts samkvæmt upplýsingum utanríkisráðuneytisins til Morgunblaðsins.

Þetta kom fram í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag.

Ólafur Adolfsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði hvaða lagaheimild ráðherra hefði til að semja við verktaka um pólitísk störf, hvernig þóknunin hefði verið ákveðin og á hvaða lagagrundvelli hefði verið samið munnlega um viðbótargreiðsluna.

Þorgerður Katrín sagði að farið hefði verið eftir öllum lögum og reglum.

Miðar kostnaðinn við ráðningu annars aðstoðarmanns

Þorgerður Katrín sagði að ráðgjöfin hefði ekki aukið útgjöld ríkisins þar sem hún hefði á meðan látið hjá líða að ráða sér annan aðstoðarmann. Slík ráðning hefði að hennar sögn verið dýrari, meðal annars vegna biðlauna sem aðstoðarmenn ráðherra eiga rétt á þegar þeir láta af störfum.

Hún sagði samning utanríkisráðuneytisins við Nebraska ehf., sem Heiða Kristín sinnti ráðgjöfinni í gegnum, hafa verið undir viðmiðunarmörkum útboðsskyldu. Ákvæði um útilokun frá innkaupaferli á grundvelli fjárhagslegs hæfis ættu því að hennar mati ekki við. Hún gagnrýndi jafnframt umfjöllun Morgunblaðsins og sagði að þar hefði verið hallað réttu máli. 

Ólafur sagði að ákvörðun um að ráða aðeins einn aðstoðarmann veitti ráðherra enga heimild til að verja opinberu fé í það sem hann taldi vera pólitískt starf í þágu hennar sem ráðherra og formanns Viðreisnar. mbl.is/Karítas

Spurði aftur um lagaheimildina

Ólafur sagði að ákvörðun um að ráða aðeins einn aðstoðarmann veitti ráðherra enga heimild til að verja opinberu fé í það sem hann taldi vera pólitískt starf í þágu hennar sem ráðherra og formanns Viðreisnar.

Hann vísaði til ákvæða laga um Stjórnarráð Íslands um aðstoðarmenn ráðherra og bað Þorgerði Katrínu á ný að tilgreina hvaða lagaákvæði hún teldi heimila samningana.

Ólafur gagnrýndi einnig að samið hefði verið munnlega um viðbótargreiðsluna án starfslýsingar. Þorgerður Katrín sagði verkefnin hafa verið skýrt skilgreind í samningnum og sakaði Ólaf um að vega að Heiðu Kristínu með dylgjum.

Hún útskýrði hvers vegna þörf hefði verið á frekari vinnu eftir atkvæðagreiðsluna. Í svörum hennar kom hvorki fram hvaða lagaákvæði hún taldi heimila munnlega samkomulagið né hvernig þóknunin var ákveðin. 

Greiddi félaginu alls 14 milljónir króna

Skriflegi samningurinn var undirritaður 4. mars og gilti þar til þjóðaratkvæðagreiðslan hafði farið fram. Samkvæmt honum nam mánaðarþóknunin 1.750.000 krónum án virðisaukaskatts fyrir allt að 25 klukkustunda vinnu á viku.

Greiðslur samkvæmt upphaflega samningnum gátu numið 10,5 milljónum króna. Með viðbótarþóknuninni greiddi ráðuneytið Nebraska alls 14 milljónir króna án virðisaukaskatts. Ráðuneytið hafði áður sagt Morgunblaðinu að vinnan hefði reynst umfangsmeiri en ráð var fyrir gert, bæði fyrir og eftir atkvæðagreiðsluna. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab