Þorbjörg með nóg af niðursuðuvörum og þurrmat
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segist eiga nóg af þurrmat og niðursuðudósamat en að enn eigi hún þó eftir að koma sér upp útvarpi sem gangi fyrir rafhlöðum.
Þetta kom fram í ávarpi hennar á hádegisfundi Varðbergs í dag í tilefni af útgáfu bæklingsins Verum viðbúin sem á að efla viðbúnað almennings og styrkja seiglu samfélagsins. Hún segir að útvarpið vanti þar sem slík tæki hafi selst upp, en hún segir það til marks um að almenningur leggi við hlustir á varúðarorð almannavarna.
Útvarpskaupin eru meðal þess sem kveðið var á um í lista almannavarna um birgðir sem fólk ætti að eiga ef neyðarástand kæmi upp.
„Ég er hins vegar komin býsna langt niður listann og á nægar birgðir af niðursuðuvörum og þurrmat,“ sagði hún.
Vill auka valdheimildir
Þorbjörg ræddi margt fleira í ræðu sinni, meðal annars netöryggismál. Mörg varhugaverð dæmi hefðu komið upp á skömmum tíma undanfarið.
Hún sagði valdheimildir lögreglu hafa setið eftir sé miðað við nágrannaríkin en tiltók ekki með hvaða hætti. Um leið hélt hún því fram að nýtt frumvarp um fjölgun lögregluembætta væri til þess fallið að efla lögregluna.
Hún sagði von á nýju frumvarpi til afgreiðslu til að taka betur á skipulagðri glæpastarfsemi.
Ræðuna má sjá í heild sinni hér að neðan.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗