Boðar breytingar eftir 1.800 athugasemdir
Haft er eftir ráðherra að góðar og mikilvægar ábendingar hafi komið fram í samráðinu. mbl.is/Karítas
Breytingar verða gerðar á drögum að reglugerð um framfærslu vegna umsókna um dvalarleyfi og íslenskan ríkisborgararétt áður en endanlegar reglur verða settar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu, en rúmlega 1.800 umsagnir bárust um reglugerðardrögin.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir ljóst að taka þurfi tillit til þeirra sjónarmiða sem komu fram í samráðinu og tryggja að kröfur um framfærslu verði bæði raunhæfar og sanngjarnar.
„Góðar og mikilvægar ábendingar komu fram í samráðinu. Við ætlum að hlusta á þær. Kröfurnar eiga að vera raunhæfar og sanngjarnar en þær eiga líka að taka mið af ólíkum aðstæðum,“ er haft eftir Þorbjörgu í tilkynningunni.
Óvíst hvaða breytingar verða gerðar
Reglugerðardrögin voru birt í samráðsgátt stjórnvalda í byrjun mánaðarins. Þeim er ætlað að setja framfærsluviðmið fyrir einstaklinga frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) sem sækja um dvalarleyfi hér á landi, auk þeirra sem óska eftir íslenskum ríkisborgararétti.
Hingað til hefur Útlendingastofnun birt framfærsluviðmið á vef sínum sem miðast við grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar Reykjavíkurborgar. Nú stendur hins vegar til að festa viðmiðin í reglugerð.
Umsagnarfresti er lokið og hefur ráðuneytið hafið yfirferð á þeim rúmlega 1.800 umsögnum sem bárust.
Ekki kemur þó fram í tilkynningunni hvaða breytingar verða gerðar á drögunum.
„Við förum vandlega yfir umsagnirnar og gerum þær breytingar sem eru nauðsynlegar áður en endanlegar reglur verða settar,“ segir Þorbjörg.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗