Villarreal leiðréttir rangfærslur um augnaðgerð Pepe
Spænska knattspyrnufélagið Villarreal hefur vísað á bug fréttum um að Nicolas Pepe hafi þurft að gangast undir augnaðgerð eftir að hafa horft beint á almyrkva í ágúst án þess að nota hlífðargleraugu.
Pepe, sem er 31 árs, var frá keppni í sex leiki eftir augnaðgerð í október. Á samfélagsmiðlum fór á kreik sú saga að hann hefði skaðað augun í sér með því að horfa beint á almyrkvann 12. ágúst.
Myndband birtist í kjölfarið, sem sagt var koma af samfélagsmiðlareikningi Pepe, þar sem hann virtist fylgjast með almyrkvanum á Spáni.
Villarreal segir þessar fullyrðingar hins vegar „algerlega rangar“ og að aðgerðin hafi verið ákveðin fyrirfram af allt öðrum ástæðum.
„Aðgerðin hafði verið skipulögð fyrirfram og tengdist almyrkvanum ekkert,“ sagði í yfirlýsingu félagsins. Jafnframt var fjölmiðlum hvatt til að sýna ábyrgð og nákvæmni þegar fjallað væri um heilsufar leikmanna.
Pepe gekk til liðs við Villarreal frá Trabzonspor árið 2024 og hefur skorað 14 mörk í 86 leikjum fyrir félagið í öllum keppnum.
Fílbeinsstrendingurinn lék áður með Arsenal eftir að enska félagið greiddi Lille 72 milljónir punda fyrir hann sumarið 2019. Það var þá hæsta kaupverð sem Arsenal hafði greitt fyrir leikmann.
Pepe skoraði 27 mörk í 112 leikjum fyrir Lundúnaliðið og lék síðar með Nice á láni áður en hann gekk til liðs við Trabzonspor án greiðslu.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗