Boðar tillögur um hallalaus fjárlög á næstu dögum

Kristrún sagði að til að ná hallalausum fjárlögum þyrfti að grípa til aðgerða bæði á tekju- og útgjaldahlið. mbl.is/Eyþór

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að tillögur um breytingar á fjárlagafrumvarpi næsta árs verði birtar á næstu dögum og lagðar fyrir fjárlaganefnd Alþingis.

Markmiðið sé að frumvarpið verði afgreitt án halla. Kristrún segir það bestu leið ríkisstjórnarinnar til að skapa skilyrði fyrir vaxtalækkunum.

Þetta kom fram í svari Kristrúnar við fyrirspurn Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag.

Guðrún spurði hvers vegna ríkisstjórnin hefði ekki ráðist fyrr í hagræðingu í ríkisrekstri og hverju hefði verið áorkað frá því að Kristrún hét því fyrir kosningar að „negla niður vextina“. 

Hallalaus fjárlög besta leiðin

„Besta leiðin fyrir okkur til að negla niður vextina, sleggjan sem við þurfum á að halda núna, eru hallalaus fjárlög,“ sagði Kristrún. Hún sagði ríkisstjórnina hafa heitið því að skapa aðstæður til vaxtalækkana og að þær aðstæður væru nú að skapast.

Kristrún sagði að til að ná hallalausum fjárlögum þyrfti að grípa til aðgerða bæði á tekju- og útgjaldahlið. Í fjárlagafrumvarpinu sem lagt var fram í september var gert ráð fyrir 4,7 milljarða króna afgangi. Seðlabankinn spáir nú um 17 milljarða króna halla á ríkissjóði á næsta ári.

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hefur sagt að brugðist verði við þeim breyttu horfum með frekara útgjaldaaðhaldi. 

Guðrún sakaði ríkisstjórnina um að hafa aukið útgjöld á meðan Seðlabankinn reyndi að draga úr eftirspurn. Heimilin hefðu því þurft að búa við meiri verðbólgu og hærri vexti en ella. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Störfum fækkað og atvinnuleysi farið vaxandi

Guðrún sagði Samfylkinguna hafa gengið til kosninga með fyrirheit um að draga úr kostnaði heimila og fyrirtækja án þess að hækka skatta á almenning. Hún sakaði ríkisstjórnina um að hafa aukið útgjöld á meðan Seðlabankinn reyndi að draga úr eftirspurn. Heimilin hefðu því þurft að búa við meiri verðbólgu og hærri vexti en ella.

Hún sagði störfum á almennum vinnumarkaði hafa fækkað og atvinnuleysi farið vaxandi. Hún spurði hvers vegna ríkisstjórnin hygðist herða aðhaldið nú þegar Seðlabankanum hefði þegar tekist að kæla hagkerfið.

Verðbólga mældist 5,9% í október, samanborið við 4,8% í desember 2024 þegar ríkisstjórnin tók við. Meginvextir Seðlabankans voru 8,5% við stjórnarskiptin og eru nú 8%. 

Kristrún sagði ríkisstjórnina hafa tekið við flóknu búi og vísaði til rúmlega 800 milljarða króna uppsafnaðs halla. Það hefði tekið tíma að átta sig á stöðunni og hvaða vilyrði hefðu þegar verið gefin. Hún sagði hátt í þriðjung verðbólgunnar mega rekja til olíuverðshækkana vegna átakanna í Mið-Austurlöndum og benti á að virðisaukaskattur á eldsneyti hefði verið lækkaður tímabundið til að milda áhrif hækkunarinnar.

Deildu um ábyrgð á hallanum

Guðrún mótmælti því að rekja mætti hallann allan til fyrri ríkisstjórnar. Hún sagði ríkisstjórn Kristrúnar sjálfa bera ábyrgð á 140 milljarða króna útgjaldaauka um síðustu áramót. Yfir 300 milljarða króna af hallanum mætti að hennar sögn rekja til beins kostnaðar vegna heimsfaraldursins. Hún nefndi einnig kostnað vegna jarðeldanna á Reykjanesskaga.

Guðrún rifjaði upp að Kristrún hefði fyrir kosningar sakað fráfarandi ríkisstjórn um að hafa brugðist fólkinu í landinu með því að gæta ekki að efnahagsmálunum. Hún spurði hvers vegna sama gagnrýni ætti ekki við um ríkisstjórn Kristrúnar nú.

Kristrún sagði fyrri ríkisstjórn hafa haft svigrúm til að bæta afkomu ríkissjóðs á hagvaxtarárunum eftir heimsfaraldurinn. Þegar núverandi ríkisstjórn tók við hefði verið gert ráð fyrir halla næstu fimm árin. Hún sagði að samkvæmt gögnum sem senn yrðu birt yrðu ríkisútgjöld á næsta ári þau lægstu á áratugnum. Hún tilgreindi ekki við hvaða mælikvarða hún miðaði.

Kristrún sagðist vonast til að bæði vextir og verðbólga lækkuðu á næsta ári. Seðlabankinn spáir því að verðbólga hjaðni tiltölulega hratt á árinu. Peningastefnunefnd hélt meginvöxtum óbreyttum í síðustu viku og sagði framhaldið ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga. 

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab