Brosti í gegnum tárin í brúðkaupinu

Hjónin Maxx Morando gengu og Miley Cyrus gengu í hjónaband um helgina. Ljósmynd/AFP

Tónlistarkonan Miley Cyrus gekk í hjónaband með tónlistarmanninum Maxx Morando í Palm Springs í Kaliforníu á laugardaginn. Cyrus var gríðarlega hamingjusöm á brúðkaupsdaginn. 

„Athöfnin var svo falleg. Miley var spennt og örlítið stressuð fyrir fram,“ sagði heimildarmaður People eftir athöfnina. „Á meðan heitin voru flutt brosti hún í gegnum tárin. Hún reyndi að halda aftur af sér en hún var einfaldlega svo hamingjusöm að vera að giftast Maxx,“ bætti heimildarmaðurinn við.

Á meðal gesta í brúðkaupinu voru foreldrar brúðarinnar, Tich Cyrus og fyrrverandi eiginmaður hennar, tónlistarmaðurinn Billy Ray Cyrus. Kærasta hans, breska leikkonan Elizabeth Hurley mætti með honum sem og sonur henar, Damien Hurley. 

Á brúðkaupsdaginn klæddist Cyrus síðerma silkikjól frá Saint Laurent sem var opinn í bakið. Morando klæddist einnig fatnaði frá franska lúxustískuhúsinu. 

Kynntust á blindu stefnumóti

Ár er frá því að parið trúlofaði sig. Cyrus og Morando eiga tónlistina sameiginlega en Marondo er þekktur trommari. Þau kynntust á blindu stefnumóti og mættu í fyrsta sinn saman á opinberan viðburð árið 2021.

Cyrus var áður gift ástralska leikaranum Liam Hemsworth frá 2018 til 2019.

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab