Brosti í gegnum tárin í brúðkaupinu
Tónlistarkonan Miley Cyrus gekk í hjónaband með tónlistarmanninum Maxx Morando í Palm Springs í Kaliforníu á laugardaginn. Cyrus var gríðarlega hamingjusöm á brúðkaupsdaginn.
„Athöfnin var svo falleg. Miley var spennt og örlítið stressuð fyrir fram,“ sagði heimildarmaður People eftir athöfnina. „Á meðan heitin voru flutt brosti hún í gegnum tárin. Hún reyndi að halda aftur af sér en hún var einfaldlega svo hamingjusöm að vera að giftast Maxx,“ bætti heimildarmaðurinn við.
Á meðal gesta í brúðkaupinu voru foreldrar brúðarinnar, Tich Cyrus og fyrrverandi eiginmaður hennar, tónlistarmaðurinn Billy Ray Cyrus. Kærasta hans, breska leikkonan Elizabeth Hurley mætti með honum sem og sonur henar, Damien Hurley.
Á brúðkaupsdaginn klæddist Cyrus síðerma silkikjól frá Saint Laurent sem var opinn í bakið. Morando klæddist einnig fatnaði frá franska lúxustískuhúsinu.
Kynntust á blindu stefnumóti
Ár er frá því að parið trúlofaði sig. Cyrus og Morando eiga tónlistina sameiginlega en Marondo er þekktur trommari. Þau kynntust á blindu stefnumóti og mættu í fyrsta sinn saman á opinberan viðburð árið 2021.
Cyrus var áður gift ástralska leikaranum Liam Hemsworth frá 2018 til 2019.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗