ÁTVR sendir nú vínið heim til viðskiptavina
Nú þarf fólk ekki lengur að gera sér ferð í Vínbúðir ríkisins ef það vill kaupa sér áfengi. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Viðskiptavinir ÁTVR geta frá og með deginum í dag fengið áfengi sent heim að dyrum. Pósturinn annast heimsendingar og greiða viðskiptavinir fyrir þjónustuna samkvæmt gjaldskrá Póstsins. Áætlaður afhendingartími er að jafnaði einn til þrír dagar.
Í tilkynningu frá ÁTVR segir að boðið hafi verið upp á pantanir úr verslunum Vínbúðanna frá árinu 2000 og úr vefverslun frá 2009.
„Úrvalið í vefversluninni er mun breiðara en í Vínbúðunum. Með heimsendingu stígum við skref í átt að því að jafna aðgengi að þessu úrvali óháð búsetu án þess að hvika frá kröfum um ábyrga sölu og þjónustu. Heimsending getur jafnframt komið sér vel fyrir þá sem búa langt frá næstu Vínbúð og verið hentug þegar um stærri pantanir er að ræða, til dæmis fyrir veislur og aðra viðburði. Birgjar fá einnig aukin tækifæri til að koma á framfæri vörum sem ekki eru í hillum Vínbúðanna“ segir Þorgerður Kristín Þráinsdóttir, forstjóri ÁTVR.
Heimsendingar verða ekki afgreiddar samdægurs. Viðskiptavinir geta áfram valið að fá pantanir sendar í Vínbúðir um allt land án endurgjalds.
„Við kaup úr vefverslun auðkenna viðskiptavinir sig með rafrænum skilríkjum. Öryggi og ábyrgð við afhendingu eru ekki síður mikilvæg og til að tryggja 20 ára aldurstakmark verður rafræn auðkenning einnig skilyrði þegar pöntun er afhent. Þannig er tryggt að sala og afhending fari fram í samræmi við hlutverk og ábyrgð ÁTVR,“ er haft eftir Þorgerði í tilkynningu.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗