Matvælastofnun varar við vinsælu jólasmákökudeigi
Matvælastofnun varar við neyslu á öllum framleiðslulotum af jólasmákökudeigi, Þristakökum með vörumerkinu Evu Laufey sem Myllan framleiðir vegna málmloks sem fannst í einni vöru.
Á vef Matvælastofnunar kemur fram að varan hafi verið innkölluð af fyrirtækinu í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar. Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
- Vörumerki: Eva Laufey
- Vöruheiti: Jólasmákökudeig - Þristakökur
- Nettómagn: 500 g
- Strikamerki: 5690568019863
- Lotur: Allar lotur
- Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Myllan, Blikastaðavegi 2-8, 112 Reykjavík.
- Dreifing: Verslanir Hagkaupa og Bónuss og Kaupfélag Skagfirðinga á Sauðárkróki.
Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni. Einnig er hægt að skila henni í versluninni þar sem hún var keypt eða hjá Myllunni.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗