Jennifer Lawrence segir þennan MAGA stuðningsmann versta kyssarann – Óþægilegt kynlílfsatriði
Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 23. nóvember 2026 14:30
Jennifer Lawrence þarf að kyssa menn í vinnunni og þessi var sá versti.
Jennifer Lawrence segir leikarann Chris Pratt þann versta sem hún hafi þurft að kyssa. Lawrence lýsir óþægilegu kynlífsatriði með Pratt, sem þykir hallur undir Donald Trump Bandaríkjaforseta.
The Daily Beast greinir frá þessu.
Leikkonan Jennifer Lawrence var beðin að lista upp bestu kyssarana í Hollywood í nýjum hlaðvarpsþætti Watch What Happens Live. Það er á milli Josh Hutcherson, Liams Hemsworth, Thimothee Chalamet, Bradley Cooper og Chris Pratt.
„Bestur er Josh, og svo, ja, Hemsworth, Cooper, Chalamet, Pratt,“ sagði Lawrence.
Athygli vakti að Lawrence nefndi Pratt síðastan en hún hefur áður sagt frá óþægilegum kossi og kynlífsatriði með Pratt. En þau léku aðalhlutverk í rómantísku vísindaskáldskapsmyndinni Passengers sem kom út árið 2016.
Pratt þykir um margt á skjön við flesta leikara í Hollywood. Hann þykir hallur undir Donald Trump forseta og sérstaklega Robert F. Kennedy heilbrigðisráðherra. Þá tilheyrir Pratt einnig umdeildri kirkju sem þykir andsnúin hinsegin fólki.
Vond tilfinning í maganum
Í viðtali eftir tökur á Passengers lýsti Lawrence tökum á kynlífsatriði með Pratt sem hún sagði hafa verið óþægilegt.
„Þetta var í fyrsta sinn sem ég kyssti giftan mann, og sektarkennd er eins og versta tilfinning sem hægt er að finna fyrir í maganum. Ég vissi að þetta væri vinnan mín, en ég gat ekki látið magann skilja það,“ sagði Lawrence.
Pratt var á þeim tíma giftur leikkonunni Önnu Faris. Þau skildu árið 2018 og er hann nú giftur rithöfundinum Katherine Schwarzenegger, dóttur leikarans og fyrrum fylkisstjórans Arnolds Schwarzenegger.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗