Svo gott sem öruggt að Bretland haldi HM

Það stefnir allt í að HM kvenna árið 2035 fer fram í Bretlandi. FIFA á aðeins eftir að staðfesta þetta.

England, Skotland, Wales og Norður-Írland standa sameiginlega að umsókninni og eru einu umsækjendurnir. Verði hún samþykkt verður þetta fyrsta heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem haldið er í Bretlandi síðan 1966.

Alls munu 48 þjóðir taka þátt og leikirnir verða 104 á 39 dögum. Gert er ráð fyrir að spilað verði á 19 leikvöngum, þar af 14 á Englandi.

Þá er gert ráð fyrir að HM fjórum árum áður fari fram í Bandaríkjunum, Mexíkó, Kosta Ríka og Jamaíka, en FIFA á einnig eftir að staðfesta það formlega.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab