Góðar fréttir fyrir Arsenal
Meiðsli David Raya markvarðar Arsenal og spænska landsliðsins í fótbolta eru ekki jafn alvarleg og talið var í fyrstu.
Þetta staðfesti Mikel Arteta knattspyrnustjóri liðsins á blaðamannafundi í dag.
Raya þurfti að fara af velli eftir að hafa meiðst gegn Newcastle á laugardagskvöld og var óttast að um alvarleg meiðsli væri að ræða.
Markvörðurinn þarf ekki að gangast undir aðgerð, sem hefði getað haldið honum frá keppni í marga mánuði.
„Við bjuggumst við mun verri niðurstöðu því hann var nánast ófær um að þola verkina á þeim tíma. Fyrstu rannsóknir benda hins vegar til mun jákvæðari niðurstöðu. Við fáum nákvæmari upplýsingar á morgun,“ sagði Arteta.
Raya missir af leik Arsenal og Borussia Dortmund á morgun og óvíst er hvort hann verði klár í slaginn þegar Arsenal mætir Manchester City á sunnudag en frekari rannsóknir fara fram á morgun.
Arteta tók einnig fram á fundinum að Arsenal stæði vel þegar kemur að markvarðastöðunni og að Kepa Arrizabalaga og Illan Meslier væru báðir tilbúnir að stíga inn í liðið.
„Við vitum hvað David færir liðinu, en þess vegna leggjum við líka mikla áherslu á að vera með Kepa og Illan tilbúna. Allir þurfa að vera viðbúnir, því miður geta svona hlutir gerst. Nú þurfum við að sýna hversu vel við erum tryggðir í markvarðarstöðunni,“ sagði Arteta.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗