ÁTVR byrjar að bjóða upp á heimsendingu á áfengi
Ritstjórn DV
Mánudaginn 23. nóvember 2026 14:15
Úr einni af verslunum Vínbúðarinnar. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.
Frá og með deginum í dag, 23. nóvember, mun ÁTVR bjóða upp á heimsendingu á vörum úr vefverslun. Boðið hefur verið upp á pantanir úr verslunum Vínbúðanna frá árinu 2000 og úr vefverslun frá 2009.
Í tilkynningu frá ÁTVR segir Þorgerður Kristín Þráinsdóttir, forstjóri ÁTVR, að úrvalið í vefversluninni sé mun breiðara en í Vínbúðunum. Þá sé með þessu stigið skref í því að jafna aðgengi að þessu úrvali óháð búsetu.
„Heimsending getur jafnframt komið sér vel fyrir þá sem búa langt frá næstu Vínbúð og verið hentug þegar um stærri pantanir er að ræða, til dæmis fyrir veislur og aðra viðburði. Birgjar fá einnig aukin tækifæri til að koma á framfæri vörum sem ekki eru í hillum Vínbúðanna“ segir hún.
Í tilkynningunni kemur fram að Pósturinn annist heimsendingar og greiða viðskiptavinir fyrir þjónustuna samkvæmt gjaldskrá Póstsins. Áætlaður afhendingartími er að jafnaði einn til þrír dagar. Heimsendingar verða ekki afgreiddar samdægurs.
Viðskiptavinir geta áfram valið að fá pantanir sendar í Vínbúðir um allt land án endurgjalds.
„Við kaup úr vefverslun auðkenna viðskiptavinir sig með rafrænum skilríkjum. Öryggi og ábyrgð við afhendingu eru ekki síður mikilvæg og til að tryggja 20 ára aldurstakmark verður rafræn auðkenning einnig skilyrði þegar pöntun er afhent. Þannig er tryggt að sala og afhending fari fram í samræmi við hlutverk og ábyrgð ÁTVR“ segir Þorgerður.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗