Hver á að borga við Gullfoss?
Gullfoss er einn þriggja áfangastaða á Gullna hringnum þar sem lagt er til að tekið verði upp náttúru- og innviðagjald. mbl.is/Ómar Óskarsson
Tveir gestir gætu komið að Gullfossi á sama tíma en aðeins annar þeirra þurft að greiða fyrir aðgang. Hvort gjaldið félli á þá réðist að jafnaði af því hvar þeir væru skattskyldir. Lögmaður sem vann álit fyrir fjögur sveitarfélög í uppsveitum Árnessýslu vegna áformaðs náttúru- og innviðagjalds telur verulegar líkur á að sú útfærsla standist ekki EES-samninginn.
Oddvitar Bláskógabyggðar, Grímsnes- og Grafningshrepps, Hrunamannahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps skora á ríkisstjórnina að endurskoða gjaldtökuna og leggja fram ítarlegra lögfræðilegt mat og áhrifagreiningu. Þeir vara jafnframt við því í sameiginlegri tilkynningu að gjaldtakan geti bakað ríkinu bótaskyldu.
Frá vinstri eru Guðmundur Finnbogason, Haraldur Þór Jónsson, Jón Bjarnason og Helgi Kjartansson. Oddvitarnir fjórir í uppsveitum Árnessýslu skora á ríkisstjórnina að endurskoða fyrirhugaða gjaldtöku á Gullna hringnum. Samsett mynd
Efast um að gjaldið standist EES-samninginn
Stefán Geir Þórisson, lögmaður hjá Forum lögmönnum, vann álitið út frá drögunum sem birtust í samráðsgátt. Að hans mati getur viðmið um skattskyldu falið í sér óbeina mismunun eftir þjóðerni, enda myndi gjaldið að mestu leggjast á erlenda gesti. Hann telur útfærsluna jafnframt takmarka frelsi ferðamanna frá öðrum EES-ríkjum til að þiggja þjónustu hér á landi.
Við kynningu á drögunum vísaði atvinnuvegaráðuneytið til þess að þeir sem eru skattskyldir hér á landi hafi þegar tekið þátt í að fjármagna innviði og náttúruvernd með skattgreiðslum. Stefán telur tengsl almennra skattgreiðslna og undanþágunnar of veik. Hann vísar meðal annars til dóms Evrópudómstólsins um afslátt sem ítölsk söfn og aðrir menningarstaðir veittu eldri gestum eftir ríkisfangi eða búsetu. Dómstóllinn taldi skattgreiðslur heimamanna ekki réttlæta að gestir frá öðrum ESB-ríkjum á sama aldri fengju verri kjör.
Tekjurnar renna í ríkissjóð
Í lögfræðiálitinu segir Stefán Geir að umhverfisvernd geti eftir atvikum réttlætt takmarkanir á þjónustufrelsi. Ríkið þyrfti þá að sýna fram á að gjaldtakan stuðlaði að verndinni og að sama markmiði yrði ekki náð með vægari leið. Hann bendir á að tekjurnar eigi að renna í ríkissjóð án þess að vera eyrnamerktar náttúruvernd. Aukin tekjuöflun dugi ein og sér ekki sem réttlæting. Stefán setur þann fyrirvara að fullmótuð lögfræðileg vörn ríkisins hafi, eftir því sem hann fékk séð, ekki legið fyrir þegar hann vann álitið.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra lagði frumvarpið fram á Alþingi 16. nóvember. Samkvæmt því þurfa gestir 18 ára og eldri að hafa aðgangsskírteini við Gullfoss, Geysi og í þjóðgarðinum á Þingvöllum. Þeir sem báru almenna skattskyldu hér á landi á síðasta tekjuári fá skírteinið án greiðslu. Fyrir gjaldskylda gesti kostar það 4.500 krónur, en 3.000 krónur frá 1. nóvember til 31. maí. Verði frumvarpið að lögum hefst gjaldtakan 1. maí 2027.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
