Fá framherja í stað Stefans

Joacim Holtan.

Joacim Holtan. Ljósmynd/Keflavík

Keflavík hefur samið við norska framherjann Joacim Holtan um að leika með liðinu í Bestu deild karla í fótbolta.

Holtan mun fylla í skarð Stefan Alexander Ljubicic sem gekk til liðs við Breiðablik nýlega.

Holtan er 28 ára og skoraði 16 mörk í 21 deildarleik á sínu fyrsta tímabili á Íslandi með Aftureldingu og varð markakóngur 1. deildarinnar.

Hann átti stóran þátt í því að Afturelding vann deildina og tryggði sér sæti í Bestu deildinni og komst í bikarúrslit þar sem liðið tapaði fyrir Breiðablik.

Áður en Holtan kom til Íslands lék hann meðal annars með Bryne, Start, Kongsvinger og Egersund. Hann á einnig að baki leiki í efstu deild Noregs með Haugesund.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab