Hafa opnað aðgang að nýju VOR-kerfi
Frá löndun á Akureyri. Fiskistofa hefur nú opnað fyrir aðgengi að nýju VOR-kerfi, en það er rafrænt kerfi fyrir vigtar- og ráðstöfunarskýrslur. mbl.is/Þorgeir
Nýtt VOR-kerfi er nú aðgengilegt öllum notendum á vef Fiskistofu. Kerfið heldur utan um vigtar- og ráðstöfunarskýrslur sem varða kaup, vigtun og ráðstöfun sjávarafla hér við land.
„Markmiðið með nýja kerfinu er að einfalda skýrslugjöf og bæta aðgengi að þjónustu,“ segir á vef Fiskistofu.
Þar eru notendur hvattir til að hefja notkun á nýja kerfinu sem fyrst.
Bent er á að um áramót sameinist Fiskistofa, Matvælastofnun (MAST), Verðlagsstofa skiptaverðs og matvælaeftirlit heilbrigðiseftirlits sveitarfélaganna í Stofnun atvinnuveganna (STAV).
„Samhliða þeim breytingum verður gamla VOR-kerfinu lokað fljótlega eftir áramót, en nákvæm dagsetning verður auglýst síðar.“
Nýja kerfið er sagt aðgengilegt í vafra á síma, spjaldtölvu og tölvu með nettengingu, en innskráning í það fer fram með rafrænum skilríkjum á vefslóðinni: https://vor.fiskistofa.is/
Áréttað er að hver sem skráir sig inn í VOR-kerfið þarf að hafa heimild til að skila VOR-skýrslum fyrir viðkomandi fyrirtæki.
Þá kemur fram að unnið sé að þróun vefþjónustu sem geri fyrirtækjum kleift að senda gögn beint úr eigin kerfum til stofnunarinnar.
„Markmiðið er að draga úr handvirkri skráningu og tvíverknaði. Lausnin getur meðal annars nýst vinnslum og öðrum fyrirtækjum sem skila miklu magni gagna.“
Eins er tekið fram að gamla VOR-kerfið verði áfram opið samhliða nýja kerfinu um tíma þannig að notendur geti gripið til þess ef þörf krefur.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗