Laus úr fangelsi 14 árum eftir harmleikinn – 32 létust
Francesco Schettino, fyrrverandi skipstjóri skemmtiferðaskipsins Costa Concordia, hefur verið látinn laus úr fangelsi á Ítalíu. Schettino var dæmdur í 16 ára fangelsi vegna slyssins árið 2012 þegar skipið strandaði og 32 manns létu lífið.
Schettino, sem er 66 ára, var við stjórnvölinn þann 13. janúar 2012 þegar Costa Concordia sigldi á sker skammt frá eyjunni Giglio við Ítalíu. Um 3.200 farþegar og rúmlega þúsund áhafnarmeðlimir voru um borð. Var slysið eitt mannskæðasta skemmtiferðaskipaslys síðari tíma.
Schettino var meðal annars sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi og fyrir að yfirgefa skipið á meðan fjöldi farþega var enn um borð. Hann hafði siglt skipinu of nálægt landi og var einnig gagnrýndur fyrir að vanmeta alvarleika slyssins og láta hjá líða að gera yfirvöldum viðvart nógu tímanlega.
Hann hlaut 16 ára fangelsisdóm árið 2015 en var látinn laus síðastliðið föstudagskvöld, 20. nóvember, samkvæmt ákvörðun dómstóls í Róm. Góð hegðun í fangelsi átti þátt í því að hann fékk reynslulausn.
Schettino mun nú dvelja í Campania-héraði og þarf að sæta ýmsum skilyrðum. Honum er til dæmis óheimilt að yfirgefa heimili sitt á milli klukkan 22 á kvöldin og til sex á morgnana.
Lögmaður hans segir Schettino afar ánægðan með ákvörðunina en að hann geri sér jafnframt grein fyrir því að afplánun refsingarinnar sé ekki að fullu lokið.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗