EM úr sögunni hjá nýliðanum

Henriette Espetvedt Eggen.

Henriette Espetvedt Eggen. Ljósmynd/Esbjerg

Norska handknattleikskonan Henriette Espetvedt Eggen missir af Evrópumótinu í næsta mánuði eftir að hafa meiðst á þumalfingri í leik með danska liðinu Esbjerg um helgina.

Esbjerg greindi frá því á mánudag að Eggen hefði meiðst á vinstri þumalfingri í leik gegn Skanderborg á laugardag. Rannsóknir leiddu í ljós liðbandaskaða sem krefst aðgerðar.

Gert er ráð fyrir að hún fari í aðgerð í vikunni og verði frá keppni í um þrjá mánuði.

Eggen, sem er 23 ára, var í landsliðshópi Noregs fyrir Evrópumótið og átti að vera einn þriggja nýliða í hópnum undir stjórn Ole Gustav Gjekstad. Hún hefur þó enn ekki leikið landsleik.

Ekki liggur fyrir hvort Gjekstad kalli annan leikmann inn í hópinn í hennar stað.

Noregur er í riðli með Rúmeníu, Sviss og Norður-Makedóníu á Evrópumótinu, sem fram fer í fimm löndum: Póllandi, Rúmeníu, Tékklandi, Slóvakíu og Tyrklandi.

Fjarvera Eggen bætist við önnur áföll í norska hópnum. Veronica Kristiansen er frá vegna hnémeiðsla og Maren Aardahl er barnshafandi Þá verður Katrine Lunde ekki með eftir að hafa lagt landsliðsskóna á hilluna.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab