Marcos sendi Trump skyndibita að kvöldi
Donald Trump Bandaríkjaforseti þreytist seint á því að láta skjalla sig í utanlandsferðum. Fáir gestgjafar hafa þó leikið það jafn vel og Ferdinand Marcos yngri, forseti Filippseyja.
Til að bjóða Trump og starfslið hans velkomin til Manila á leiðtogafund Samtaka Suðaustur-Asíuríkja (ASEAN) í liðinni viku lét Marcos senda þeim ríflegan skammt af skyndibita frá filippseysku keðjunni Jollibee seint um kvöld.
Hann fékk síðan móður sína, Imeldu, til að kalla Trump mikinn „leiðtoga í þágu heimsfriðar“.
Ekki fer sögum af því hvort frægi djúpsteikti kjúklingurinn „Chickenjoy“ og sæta spagettíið frá Jollibee hafi fallið Trump í geð.
Trump hrósaði filippseyska forsetanum síðar fyrir „góð gen“. Faðir forsetans, Ferdinand Marcos eldri, var einræðisherra, alræmdur fyrir spillingu.
Trump rifjaði einnig upp gamla daga með móður forsetans, hinni 97 ára Imeldu Marcos, sem lengi hefur verið áberandi í samkvæmislífinu. Hún kom inn í hjólastól, klædd rauðum samkvæmiskjól, til að heilsa Trump.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗