Segir „stóra núllið“ geta dýpkað niðursveifluna

Í upphaflegu fjárlagafrumvarpi var gert ráð fyrir afgangi sem næmi 0,1% af landsframleiðslu. Daði Már Kristófersson. fjármála- og efnahagsráðherra, hefur boðað frekara aðhald á útgjaldahlið frumvarpsins til að ná markmiðinu um hallalaus fjárlög. mbl.is/Eyþór

Frekari niðurskurður til að tryggja hallalaus fjárlög á næsta ári myndi að mati Konráðs S. Guðjónssonar, hagfræðings hjá Kontext og fyrrverandi efnahagsráðgjafa fyrri ríkisstjórnar, dýpka og lengja niðursveifluna.

Hann telur að atvinnuleysi yrði meira og kaupmáttur heimilanna yxi hægar en ella, á meðan áhrifin á verðbólgu yrðu hverfandi.

Þetta kemur fram í greiningu Konráðs, Er skynsamlegt að halda í stóra núllið?, sem hann birti á Substack í dag.

Hann segir varasamt að herða aðhaldið í ríkisfjármálum þegar slaki í hagkerfinu fer vaxandi. Að hans mati hefði verið skynsamlegra að halda aftur af útgjaldavexti í ár. Þá hefði þurft minna aðhald á næsta ári, þegar efnahagshorfur eru lakari.

Tilefni greiningarinnar er ný spá Seðlabanka Íslands, sem gerir ráð fyrir að halli ríkissjóðs verði 0,3% af landsframleiðslu á næsta ári, eða tæplega 17 milljarðar króna.

Í upphaflegu fjárlagafrumvarpi var gert ráð fyrir afgangi sem næmi 0,1% af landsframleiðslu. Daði Már Kristófersson. fjármála- og efnahagsráðherra, hefur boðað frekara aðhald á útgjaldahlið frumvarpsins til að ná markmiðinu um hallalaus fjárlög. 

Afkoman batni minna en nemur niðurskurðinum

Konráð notar haglíkan Seðlabankans til að meta áhrif þess að auka aðhald á útgjaldahlið um sem nemur 0,3% af landsframleiðslu án þess að lækka skatta á móti. Samkvæmt útreikningum hans gætu vextir lækkað um 0,1 prósentustig meira en ella á næsta ári. Sú lækkun myndi að hans mati ekki vega upp á móti áhrifum niðurskurðarins á kaupmátt heimilanna.

Minni efnahagsumsvif þýða jafnframt að afkoma ríkissjóðs batnar minna en nemur niðurskurðinum. Konráð metur þann mun á um fjóra milljarða króna samanlagt á árunum 2027 og 2028. Að hans mati þyrfti því að auka aðhaldið umfram sem nemur spáðum halla til að ná núllinu.

Konráð segir varasamt að herða aðhaldið í ríkisfjármálum þegar slaki í hagkerfinu fer vaxandi. Að hans mati hefði verið skynsamlegra að halda aftur af útgjaldavexti í ár. Þá hefði þurft minna aðhald á næsta ári, þegar efnahagshorfur eru lakari. mbl.is/María

Vísar til fyrri ummæla ráðherranna

Konráð telur að frekari niðurskurður við þessar aðstæður gangi gegn þeim rökum sem ríkisstjórnin færði fyrir upptöku stöðugleikareglunnar í fyrra. Reglan setur vexti undirliggjandi útgjalda ríkissjóðs skorður og gefur afkomunni svigrúm til að sveiflast með efnahagsumsvifum. 

Hann vísar til þess að Daði Már hafi varað við því á Alþingi að ströng fylgni við töluleg afkomumarkmið gæti orðið til þess að ríkisfjármálin ýttu undir hagsveifluna. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafi einnig bent á að stöðugleikareglan gæfi stjórnvöldum svigrúm þegar tekjur ríkissjóðs drægjust saman og slaki væri í hagkerfinu. 

Gagnrýnir tímasetningu skattabreytinga

Konráð áætlar að um þriðjungur þess aðhalds sem þegar felst í fjárlagafrumvarpinu komi til vegna skattahækkana. Hann nefnir þar meðal annars hærri virðisaukaskatt á baðlón, náttúru- og innviðagjald, hækkun bankaskatts og lægri endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu við íbúðarhúsnæði. Hann telur að tímasetning og útfærsla breytinganna geti veikt efnahagshorfur og orðið til þess að tekjuaukinn verði minni en gert er ráð fyrir.

Konráð leggur jafnframt áherslu á að viðvarandi agi í ríkisfjármálum sé nauðsynlegur til að halda skuldum viðráðanlegum og tryggja að ríkið hafi svigrúm til að bregðast við áföllum.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab