Dularfullur líkfundur á Kanaríeyjum
Maður sem hafði verið saknað fannst látinn við Famara-hamra á norðurhluta eyjarinnar Lanzarote á laugardagsmorgun. Umfangsmikil leit hafði staðið yfir frá því á föstudagskvöld, þar sem meðal annars voru notaðir drónar, leitarhundur og björgunarþyrla.
Canarian Weekly greinir frá.
Leitin hófst föstudaginn 20. nóvember eftir að tilkynnt var um hvarf mannsins. Bíll hans fannst skammt frá Ermita de Las Nieves.
Sjálfboðaliðar úr björgunarsveitinni EMERLAN tóku þátt í leitinni ásamt spænsku þjóðvarðliðunum (Guardia Civil). Notast var við dróna og leitarhund auk sérhæfðs leitarhóps sem þjálfaður er til að starfa á erfiðu og bröttu landslagi.
Leitarmenn leituðu meðal annars í hellum og giljum fram undir klukkan þrjú aðfaranótt laugardags en án árangurs. Leitinni var fram haldið síðar um morguninn og fannst maðurinn látinn um klukkan 8.50.
Þar sem erfitt var að komast að líkinu eftir landi var björgunarþyrla kölluð til og sá hún um að ná líkinu úr hamrabeltinu.
Guardia Civil rannsakar nú tildrög andlátsins. Dánarorsök hefur ekki verið staðfest en krufning verður gerð til að varpa ljósi á hana.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗