Björn Ingi segir þetta hafa verið skelfileg mistök: „Það er svo kalt í lauginni“

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Mánudaginn 23. nóvember 2026 13:30

Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður formanns Miðflokksins. Skjáskot/Samstöðin

Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Miðflokksins, segir að það hafi verið skelfileg mistök af hálfu ríkisstjórnarinnar að teikna núllið fræga til að tákna hallalaus fjárlög fyrir næsta ár. 

„Út frá almannatengslafræðunum held ég að þetta hafi verið skelfileg mistök að teikna eitthvað núll, sem að markaðurinn hefur greinilega enga trú á,“ segir Björn Ingi í þættinum Synir Egils á Samstöðinni. 

„Það er svo kalt í lauginni. Miklu kaldara en þau vilja viðurkenna. Þau eru enn að segja okkur að allt gangi svo vel en það vita allir að það er rangt. Það er gríðarlegur pólitískur fórnarkostnaður fyrir þau, nú eru þau búin að segja að það standi ekki til að hækka gjöld á þessum viku eða tíu fram að því að fjárlagafrumvarpið fer í aðra umræðu. Það þýðir að þau eru að fara að skera niður á öllum sviðum á næstu tíu dögum, sem verður mjög erfitt fyrir þessa flokka, til þess að þjóna markaðnum sem hefur ekki trú á verkefninu þeirra.“

Samkvæmt spá Seðlabankans verður halli á ríkissjóði þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi boðað hallalaus fjárlög, er gert ráð fyrir að hallinn verði 0,3% eða um 16,5 milljarðar króna. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, sagði við RÚV fyrir helgi að fjárlagafrumvarpinu verði breytt svo að markmið um hallalaus fjárlög náist. Breytingarnar verða allar á útgjaldahlið frumvarpsins.

Björn Ingi er ekki bjartsýnn:

„Það eru alls konar merki um kreppuverðbólgu sem er stórhættulegt fyrirbæri, þá viðheldur bara verðbólgan sér og enginn veit hvar byrjunin er eða endirinn, og það er bara mjög slæmt. Alls staðar í kringum okkur er verið að hækka vexti, það er miklu dýrara að skulda úti í heimi og jafnvel hjá risaþjóðum. Við þær aðstæður eru miklu minni líkur á að Seðlabanki Íslands taki upp á því að lækka vexti á meðan allir aðrir eru að hækka þá, við erum bara hluti af þessu samfélagi og ef það er að koma alvöru hrun hérna í kringum okkur þá bitnar það á Íslandi eins og öðrum.“  

Næsta stýrivaxtaákvörðun verður í febrúar á næsta ári og bindur ríkisstjórnin vonir við að þá verði hægt að lækka vexti. „Ef allt fer vel,“ segir Björn Ingi. „Fyrirtækin ætluðu ekki að hækka gjaldskrár fram að áramótum. Hvað gerist eftir áramót? Ef hlutirnir fara að hækka mjög mikið eftir áramót þá lendum við aftur í þessari súpu. Það er kallað eftir því að krónan sé of sterk, ferðaþjónustan vill veikara gengi, ef að það gerist þá getur verðbólgan farið á flug. Þetta er allt samtengt.“

Hér má horfa á þáttinn í heild sinni:

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab