Forsetinn stígur inn í umræðuna um meint hatur á hinsegin fólki

Forseti Dortmund hefur komið leikmanni liðsins, Felix Nmecha, til varnar í kjölfar viðbragða við fagni hans.

Nmecha hefur fagnað mörkum sínum með því að taka ímyndaða kórónu af höfðinu og leggja hana á jörðina.Fagnið tengist kristilegu samtökunum Ballers in God, sem hafa verið gagnrýnd fyrir íhaldssamar skoðanir á réttindum samkynhneigðra og transfólks.

„Hafa stuðningsmenn rétt á að gagnrýna þetta? Algjörlega. Má Felix Nmecha tjá trú sína hjá Borussia Dortmund? Algjörlega,“ sagði Hans-Joachim Watzke, forseti félagsins.

Nmecha hefur sjálfur sagt að fagnið snúist um trú hans en ekki mismunun eða hatur.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab