Hundruðum flugferða aflýst

Hundruðum flugferða hefur verið aflýst og verulegar truflanir hafa orðið á lestarsamgöngum víðs vegar um Belgíu vegna verkfalls gegn fyrirhuguðum aðhaldsaðgerðum stjórnvalda.

Öll flugumferð hefur verið stöðvuð á Zaventem-flugvelli í höfuðborginni Brussel, sem og í Charleroi, þar sem lággjaldaflugfélög á borð við Ryanair hafa aðsetur.

Lestir og neðanjarðarlestir hafa einnig stöðvast í Brussel, þar sem búist er við að fjöldi fólks taki þátt í mótmælagöngu.

Mótmælin eiga sér stað á sama tíma og forsætisráðherrann Bart De Wever hefur enn ekki náð samkomulagi við samstarfsflokka sína í ríkisstjórn um fjárlög sem miða að niðurskurði. Filippus konungur hafnaði afsögn hans fyrr í mánuðinum og gaf De Wever þannig meiri tíma til samningaviðræðna, sem ekkert hafa gengið.

Ferðaáætlanir yfir 50 þúsund raskast

Engar flugvélar taka á loft eða lenda á Brussel-flugvelli milli klukkan 07:00 og 21:00 að staðartíma vegna verkfalls flugumferðarstjóra. Talið er að ferðaáætlanir yfir 50.000 farþega raskist fyrir vikið, og búist er við að fleiri verði fyrir áhrifum í nótt og á þriðjudag.

Svipað ástand hefur verið í Charleroi, þar sem öll flug voru skráð sem „áætluð“, óháð brottfarar- eða komutíma.

„Án flugumferðarstjórnar geta engar flugvélar tekið á loft eða lent,“ sagði  í yfirlýsingu frá flugvellinum á laugardag þegar verkfallið var boðað og varað var við „hörmulegum afleiðingum“.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab