Sæmundur dáinn fyrir ritun Njálu
Kenning Guðna Ágústssonar um að Sæmundur fróði Sigfússon sé höfundur Njálu er ekki sannfærandi að mati tveggja sérfræðinga. Báðir benda þeir á að Brennu-Njáls saga hafi verið skrifuð löngu eftir að Sæmundur dó.
Guðni kynnti kenningu sína á Njáluþingi á föstudag og sagði Sæmund hafa skrifað Njálu á latínu. Snorri Sturluson hafi svo flutt ritið frá Odda í Reykholt og þar hafi frændur hans þýtt verkið yfir á íslensku og klárað.
Gísli Sigurðsson, rannsóknarprófessor við Árnastofnun, segir kenninguna tóma vitleysu. „Þetta er tilefnislaus hugmynd og enginn fótur fyrir kenningunni, ekki fremur en þeirri að Sæmundur hafi samið eddukvæðin.“ Hann segir Njálu hafi verið skrifaða nærri 200 árum eftir andlát Sæmundar. Gísli segir um leið gott að fólk velti fyrir sér sögunni og rýni í hugmyndir sem geti leitt á spor höfundar Njálu. Lokasvarið fáist þó líklega ekki í bráð.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗