1984 kærir árásina og nýr galli tefur opnun

Mörður Áslaugarson segir öll gögn viðskiptavina vera örugg.

Mörður Áslaugarson segir öll gögn viðskiptavina vera örugg. Samsett mynd

Mörður Áslaugarson, framkvæmdastjóri 1984 ehf., segir að fyrirtækið hyggist kæra tölvuárásina sem það varð fyrir í síðustu viku til ríkislögreglustjóra í dag eða á morgun.

Þá segir hann að allt hafi verið til reiðu og búið að opna aftur fyrir póstþjónustu 1984 þegar nýr öryggisgalli, óskyldur tölvuárásinni, skaut upp kollinum. 

Til stendur að opna póstþjónustuna aftur síðar í dag.

Umfangsmikil tölvuárás

1984 er íslenskt vefhýsingarfyrirtæki sem hýsir vefsíður og tölvupóst fyrir viðskiptavini og býður upp á skráningu léna. Það rekur einnig nafnaþjónustu, eða DNS-þjónustu, sem vísar lénum á rétta netþjóna. 

Eins og greint hefur verið frá varð 1984 fyrir umfangsmikilli tölvuárás erlendra tölvuþrjóta á dögunum og stöðvaði alla þjónustu sína í kjölfarið, en tilgangur árásarinnar virðist hafa verið að eyðileggja vefsíður sem voru til stuðnings Palestínu.

Tölvuþrjótunum tókst að eyðileggja sjö slíkar vefsíður áður en framganga þeirra var stöðvuð. 

Voru að fara að opna póstþjónustuna

„Við vorum bara komnir með þetta og vorum að fara að ýta á enter og opna póstþjónustuna, sem skiptir marga mjög miklu máli,“ segir Mörður í samtali við mbl.is og heldur áfram: „Þá kemur tilkynning um stýrikerfisgalla.“

Hann segir gallann óskyldan tölvuárásinni sem dundi á fyrirtækinu í síðustu viku en þeir hafi fyrir vikið þurft að uppfæra og endurræsa allar vélarnar sem póstþjónustan notast við. 

„Við erum búin að hreinsa öll okkar kerfi af þessari óværu sem þessir leiðindapúkar settu inn og öll gögn viðskiptavina eru örugg, þau snertu þau ekkert,“ segir Mörður.

Vörðust árásinni vel

Mörður segir fyrirtækið hafa varist árásinni vel og fyrir vikið sloppið vel undan henni. Árásin hafi verið svokölluð háþróuð viðvarandi árás (e. advanced persistent threat) sem hafi verið svo umfangsmikil og vel fjármögnuð að hann segir allar líkur á því að erlent þjóðríki standi að baki henni.

Hann segir ekki vera tilefni til að fullyrða um hvaða þjóðríki gæti hafa verið að verki. Það eina sem þau viti í þeim efnum er hvert markmið árásarinnar var, að eyðileggja vefsíður til stuðnings Palestínu. 

Hann segir að árásin hafi byrjað 12. nóvember, hægt og bítandi, en að alvara hafi færst í leikinn um sex dögum síðar og þá hafi þau lagt allt til hliðar og tekið upp varnir. 

Þá hafi blasað við þeim tvö verkefni, annars vegar að stöðva tölvuþrjótana og hins vegar að hreinsa upp eftir þá. Til að koma í veg fyrir mistök og beina kröftum sínum að einu verkefni í einu hafi verið ákveðið að loka öllum kerfunum og einbeita sér að tiltektinni.

„Það er eiginlega bara hættulegt að vera að reyna að gera tvennt í einu,“ segir hann. 

Gefur lítið fyrir málflutning rafmyntastofnandans

Greint var frá því á miðlinum Decrypt að gengi rafmyntarinnar XMR1 hefði hrunið um meira en 99% á um hálftíma á föstudag.

Stofnandi rafmyntarþjónustunnar Wagyu, sem gaf út rafmyntina, sagði í X-færslu sinni að 1984 bæri ábyrgð á því að hafa haldið eftir skrám og gögnum eftir að netþjóni rafmyntarinnar hafði verið eytt þaðan. Þá hélt hann því jafnframt fram að gögnum allra viðskiptavina 1984 hefði verið stolið.

Mörður segist ekkert botna í þessum málflutningi og geti varla svarað honum. 

„Ég veit ekkert hvað maðurinn er að meina. En það sem ég get sagt er að við vitum nákvæmlega hvað tölvuþrjótarnir gerðu, hvernig þeir gerðu það og hvenær og þeir snertu ekki gögn.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab