Ákærður fyrir ölvunarakstur

Hector Herrera í leik með Mexíkó.

Hector Herrera í leik með Mexíkó. AFP

Mexíkóski knattspyrnumaðurinn Hector Herrera hefur verið ákærður fyrir ölvunarakstur í Texas í Bandaríkjunum.

Frá þessu greina bandarískir fjölmiðlar en Houston Dynamo, núverandi félag mexíkóska miðjumannsins, hefur staðfest að það sé meðvitað um málið og sé að afla frekari upplýsinga. Hann var ákærður á laugardag í Montgomery-sýslu.

Félagið sendi frá sér yfirlýsingu þar sem fram kom að atvikið hefði átt sér stað á föstudagskvöld.

Herrera, sem er 36 ára, er fyrrverandi leikmaður Atlético Madrid og Porto. Hann lék 105 landsleiki fyrir Mexíkó á árunum 2012 til 2023.

Óvíst er hvort málið hafi áhrif á þátttöku Herrera í komandi leikjum Houston Dynamo í úrslitakeppninni gegn San Jose Earthquakes.

Árið 2024 fékk Herrera þriggja leikja bann og ótilgreinda sekt eftir að hann var rekinn af velli fyrir að hrækja í átt að dómara.

Í kjölfarið ákvað Houston Dynamo að framlengja ekki samning hans. Eftir að hafa leikið með mexíkóska félaginu Toluca sneri hann þó aftur til Houston Dynamo fyrir tímabilið 2026.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab