Rússar hyggjast skjóta kjarnorkuvopnum út í geim
Árið 2024 vísuðu Rússar á bug fullyrðingum bandarískra embættismanna um að stjórnvöld í Moskvu væru að þróa vopn sem gæti eyðilagt gervihnetti óvinarins. AFP/Alexander Kazakov
Leyniþjónustur aðildarríkja NATO hafa komist að þeirri niðurstöðu að Rússar hyggist skjóta gervihnetti búnum kjarnorkuvopni út í geim á þessu ári, að því að nokkrir þýskir fjölmiðlar greina frá.
Vestrænar leyniþjónustur, þar á meðal þýska leyniþjónustan BND og þýski herinn, hafa skipst á upplýsingum sem sýna að gervihnötturinn, sem nefnist Sputnik-S, hafi verið settur saman fyrir nokkrum árum og sé geymdur á Moskvusvæðinu, að því er fram kom í umfjöllun útvarpsstöðvanna NDR og WDR og dagblaðsins Sueddeutsche Zeitung.
Sendiráð Rússlands í Þýskalandi, BND og höfuðstöðvar NATO í Brussel hafa ekki orðið við beiðnum þýsku miðlanna um viðbrögð, að segir í frétt Reuters.
Vísuðu fullyrðingum á bug
Árið 2024 vísuðu Rússar á bug fullyrðingum bandarískra embættismanna um að stjórnvöld í Moskvu væru að þróa vopn sem gæti eyðilagt gervihnetti óvinarins með því að framkalla kjarnorkusprengingu í geimnum.
Bandarískir embættismenn hafa haldið því fram að Rússar hafi árum saman unnið að þróun kjarnorkuvopns sem gæti eyðilagt heilu gervihnattanetin, til dæmis hið umfangsmikla Starlink-netkerfi SpaceX sem Úkraínuher hefur notað.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗