Óska eftir 100 milljónum til tveggja ára
Að sögn samtakanna leitar einhverft fólk og foreldrar einhverfra barna meðal annars til þeirra þegar þjónusta fæst ekki eða tekur ekki mið af þörfum þeirra. Ljósmynd/Colourbox
Einhverfusamtökin óska eftir 100 milljóna króna rekstrarframlagi frá ríkinu, 50 milljónum króna hvort ár 2027 og 2028.
Samtökin segja erindum frá einhverfu fólki og fjölskyldum þess hafa fjölgað verulega og að auka þurfi mönnun til að sinna ráðgjöf og stuðningi. Tveir starfsmenn sinna nú starfseminni í samtals einu stöðugildi.
Fjárbeiðnin kemur fram í erindi til fjárlaganefndar Alþingis sem birt var í dag. Samtökin óska eftir því að framlagið renni beint til þeirra, verði fært á sérstakan lið í fjárlögum og að gerður verði samningur um fjármögnun til beggja ára með fyrirvara um árlegar fjárheimildir Alþingis.
Leita til samtakanna þegar þjónusta fæst ekki
Að sögn samtakanna leitar einhverft fólk og foreldrar einhverfra barna meðal annars til þeirra þegar þjónusta fæst ekki eða tekur ekki mið af þörfum þeirra. Aðstoð við að sækja þjónustu og fylgja einstökum málum eftir geti verið tímafrek og krafist sérþekkingar á einhverfu og þjónustukerfunum.
Samtökin segja starfsfólkið sinna verkefnum langt umfram greiddan vinnutíma og vinna þann hluta starfsins í sjálfboðavinnu. Stór hluti vinnutímans fari í umsagnir, fundi og samráð við stjórnvöld, sem dragi úr því svigrúmi sem starfsfólkið hafi til að veita ráðgjöf og stuðning.
Laun og launatengd gjöld stærsti liðurinn
Í kostnaðaráætlun samtakanna er gert ráð fyrir 42 milljónum króna á ári í laun og launatengd gjöld. Sú fjárhæð tekur til núverandi starfsfólks og aukinnar mönnunar. Þá eru 4,2 milljónir áætlaðar í húsaleigu og 3,8 milljónir í grunnrekstur skrifstofu og svigrúm vegna kostnaðarbreytinga.
Samtökin segja leigukostnaðinn hafa margfaldast eftir að loka þurfti fyrra húsnæði þeirra vegna myglu og þau tóku húsnæði á leigu á almennum markaði.
Fjárbeiðnin er viðbót við umsögn samtakanna um fjárlagafrumvarpið frá 7. október. Þar vísuðu þau til talna umboðsmanns barna sem sýndu að 868 börn biðu 1. september eftir athugun hjá Geðheilsumiðstöð barna vegna gruns um einhverfu. Meðalbiðin var þá rúmir 38 mánuðir.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗