„Fýla ráðherrans“ megi ekki ráða för

Sigurður G. Guðjónsson lögmaður og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

Sigurður G. Guðjónsson lögmaður og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Samsett mynd/mbl.is/María Matthíasdóttir/Karítas

Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður Vélfags ehf., segir hugsanlega persónulega óvild Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í garð aðila sem tengjast félaginu ekki mega hafa áhrif á meðferð mála þess hjá ráðuneytinu. 

„Utanríkisráðherra getur ekkert leyft sér það ef hann er í fýlu við einhvern sem á Vélfag eða telur einhvern sem á hlut í Vélfagi hafa gert eitthvað á sinn hlut. Þá verður hann bara að segja af sér varðandi umfjöllun um málefni félagisns og láta einhverjum öðrum það í hendur,“ segir hann í samtali við mbl.is.

Ummælin koma í kjölfar þess að sex mál gegn Vélfagi voru tekin fyrir í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag.

Sex stefnendur

Fimm fyrirtæki og eitt stéttarfélag hafa stefnt Vélfagi vegna vangreiddra krafna en bankareikningar félagsins eru enn frystir vegna alþjóðlegra þvingunaraðgerða gegn Rússlandi.

Vélfag kveðst hafa ítrekað óskað eftir undanþágu frá frystingunni til að geta staðið við fjárhagslegar skuldbindingar sínar, án árangurs. Í Facebook-færslu þeirra fyrir helgi greindi félagið frá því að það hafi sent utanríkisráðuneytinu átta tölvupósta án þess að fá við þeim svör.

Sigurður segir því enn ósvarað hvort Vélfagi sé heimilt að nýta fjármuni á bankareikningum sínum eða taka lán hjá hluthöfum til að greiða kröfur sínar. 

„Það er engu svarað og þetta er náttúrulega brot á öllum reglum stjórnsýslunnar af hálfu ráðherrans. Það er nú svo einfalt,“ segir hann og bætir við: „Einhver fýla ráðherrans út í einhvern sem tengist Vélfagi getur ekki haft áhrif á gjörðir hans. Það er nú það sem skiptir máli.“

Kvartað til umboðsmanns Alþingis

Félagið hefur einnig sent inn kvörtun til umboðsmanns Alþingis vegna málsmeðferðar utanríkisráðuneytisins í tengslum við frystingu fjármuna félagsins. 

Félagið telur að stjórnvöld hafi ekki gætt að lögbundnum skyldum sínum og gagnrýnir meðal annars afstöðuleysi ráðuneytisins til beiðna félagsins um undanþágur. 

Fjárnám Skattsins

Sigurður segir Skattinn jafnframt hafa gert fjárnám í innistæðu Vélfags hjá Landsbankanum vegna skattkröfu. Skatturinn hafi óskað eftir undanþágu frá frystingunni í júlí til að fá kröfuna greidda en eftir því sem hann viti hafi hún ekki verið veitt.

„Þannig að þetta er alveg með ólíkindum, þessi vinnubrögð, og ég veit ekki hvað ráðherrann er að hugsa,“ segir hann að lokum. 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab