Rændur skömmu eftir fyrsta markið
Emmanuel Emegha, framherji Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, hefur greint frá því að hann hafi verið rændur aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið í 4:1-tapi gegn Leeds United á Brúnni.
Emegha kom Chelsea yfir í fyrri hálfleik en Noah Okafor jafnaði metin skömmu síðar og í síðari hálfleik skoraði Leeds þrjú mörk. Var þetta fyrsti sigur liðsins á Stamford Bridge frá árinu 1999.
Eftir leikinn greindi Emegha frá ráninu á samfélagsmiðlum. Hvorki hafa fengist frekari upplýsingar um hvar eða hvenær ránið átti sér stað né hverju var stolið.
Hinn 23 ára gamli Hollendingur staðfesti að enginn hefði slasast í atvikinu en það setti enn frekari skugga á afar erfiðan dag hjá Chelsea.
„Fyrsta markið, vonbrigðaúrslit en við komum sterkari til baka á föstudaginn. Því miður var ég rændur eftir leikinn. Mér líður vel og sem betur fer slasaðist enginn. Takk fyrir kveðjurnar og stuðninginn,“ skrifaði Emegha á Instagram.
Meiðsli sett strik í reikninginn
Emegha gekk til liðs við Chelsea frá systurfélaginu Strasbourg í sumar en félagaskiptin höfðu legið fyrir ári áður. Hann er uppalinn hjá Sparta Rotterdam í Hollandi en lék einnig með Royal Antwerp í Belgíu og Sturm Graz í Austurríki áður en hann hélt til Englands.
Upphafið hjá Chelsea hefur þó ekki verið dans á rósum en hann missti af fyrstu leikjum tímabilsins vegna meiðsla í aftanverðu læri. Leikurinn gegn Leeds var því aðeins þriðji leikur hans fyrir Chelsea og annar leikur hans í ensku úrvalsdeildinni.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
