Rændur skömmu eftir fyrsta markið

Emmanuel Emegha fagnar marki sínu á laugardag.

Emmanuel Emegha fagnar marki sínu á laugardag. AFP/Henry Nicholls

Emmanuel Emegha, framherji Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, hefur greint frá því að hann hafi verið rændur aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið í 4:1-tapi gegn Leeds United á Brúnni.

Emegha kom Chelsea yfir í fyrri hálfleik en Noah Okafor jafnaði metin skömmu síðar og í síðari hálfleik skoraði Leeds þrjú mörk. Var þetta fyrsti sigur liðsins á Stamford Bridge frá árinu 1999.

Eftir leikinn greindi Emegha frá ráninu á samfélagsmiðlum. Hvorki hafa fengist frekari upplýsingar um hvar eða hvenær ránið átti sér stað né hverju var stolið.

Hinn 23 ára gamli Hollendingur staðfesti að enginn hefði slasast í atvikinu en það setti enn frekari skugga á afar erfiðan dag hjá Chelsea.

„Fyrsta markið, vonbrigðaúrslit en við komum sterkari til baka á föstudaginn. Því miður var ég rændur eftir leikinn. Mér líður vel og sem betur fer slasaðist enginn. Takk fyrir kveðjurnar og stuðninginn,“ skrifaði Emegha á Instagram.

Meiðsli sett strik í reikninginn

Emegha gekk til liðs við Chelsea frá systurfélaginu Strasbourg í sumar en félagaskiptin höfðu legið fyrir ári áður. Hann er uppalinn hjá Sparta Rotterdam í Hollandi en lék einnig með Royal Antwerp í Belgíu og Sturm Graz í Austurríki áður en hann hélt til Englands.

Upphafið hjá Chelsea hefur þó ekki verið dans á rósum en hann missti af fyrstu leikjum tímabilsins vegna meiðsla í aftanverðu læri. Leikurinn gegn Leeds var því aðeins þriðji leikur hans fyrir Chelsea og annar leikur hans í ensku úrvalsdeildinni.

Emmanuel Emegha kom til Chelsea í sumar.

Emmanuel Emegha kom til Chelsea í sumar. AFP/Andy Buchanan

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab