Nikolay Mateev í Heiðurshöll Alþjóðaskylmingasambandsins
Íþróttir | mbl | 23.11.2026 | 12:10
Nikolay Mateev, formaður Skylmingasambands Íslands, ásamt Gulnara Saidova, framkvæmdastjóra FIE. Ljósmynd/Skylmingasamband Íslands
Nikolay Mateev, formaður Skylmingasambands Íslands, hlaut eina æðstu viðurkenningu Alþjóðaskylmingasambandsins (FIE) þegar hann var tekinn inn í Heiðurshöll FIE (FIE Hall of Fame).
Þing Alþjóðaskylmingasambandsins (FIE) var haldið í Búdapest í Ungverjalandi dagana 21. til 22. nóvember. Á hátíðarkvöldverði þingsins var tilkynnt um að Nikolay Mateev hefði verið tekinn inn í Heiðurshöllina.
Nikolay Mateev á sæti í framkvæmdastjórn bæði Alþjóðaskylmingasambandsins (FIE) og Evrópska skylmingasambandsins (EFC).
Þessi viðurkenning er mikill persónulegur heiður fyrir Nikolay og jafnframt mikilvægur áfangi og viðurkenning fyrir íslenskar skylmingar.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗