Endurákvarða skatta fyrir tæpar 792 milljónir

Fjármála- og efnahagsráðuneytið telur líklegt að endurákvarðanir vegna verkefnanna nemi að minnsta kosti 1,2 milljörðum króna í árslok. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Skatturinn hafði endurákvarðað skatta að fjárhæð tæplega 792 milljónir króna í byrjun nóvember vegna verkefna sem ráðist var í til að efla skatteftirlit.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið telur líklegt að endurákvarðanir vegna verkefnanna nemi að minnsta kosti 1,2 milljörðum króna í árslok.

Þetta kemur fram í minnisblaði ráðuneytisins til fjárlaganefndar Alþingis, dagsettu í dag.

Fjárlaganefnd óskaði eftir upplýsingum um áhrif aukins skatteftirlits á álagningu og innheimtu. Tölurnar miðast við endurákvarðanir sem höfðu komið til framkvæmda 3. nóvember. Í minnisblaðinu kemur ekki fram hversu mikið hefur verið innheimt.

Veittu 250 milljónir til aukins eftirlits

Alþingi samþykkti í desember í fyrra, að tillögu fjárlaganefndar, að veita Skattinum 250 milljóna króna viðbótarframlag til að efla eftirlitið. Ákvörðunin byggðist á ábatagreiningu og tekjuáætlun ríkissjóðs fyrir árið 2026 var hækkuð í kjölfarið.

Fjórtán stöðugildi hjá Skattinum eru nú nýtt til nýrra eftirlitsverkefna með áherslu á virðisaukaskatt og tekjuskatt lögaðila. Endurákvarðanir námu um 388 milljónum króna hjá virðisaukaskattsdeild, 276 milljónum hjá lögaðiladeild og tæpum 128 milljónum hjá eftirlitssviði.

Telja tekjuáhrifin geta numið tveimur milljörðum

Ráðuneytið áætlar að bein tekjuáhrif verkefnanna geti numið að minnsta kosti 1,6 milljörðum króna árið 2027. Þar er miðað við 14 ársverk og að hvert þeirra skili að jafnaði 115 milljónum króna í breyttri álagningu. Þegar óbein áhrif eru talin með telur ráðuneytið líklegt að tekjuaukinn verði að minnsta kosti tveir milljarðar króna á næsta ári.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab