Ríkið breytti 16,7 milljarða króna kröfu í hlutafé

Fjármála- og efnahagsráðuneytið rekur þessa ráðstöfun í minnisblaði til fjárlaganefndar Alþingis. Hér má sjá Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra. mbl.is/Eyþór

Ríkið breytti 16,7 milljarða króna kröfu á hendur Vaðlaheiðargöngum hf. í hlutafé 1. júlí þegar félaginu var breytt í opinbera innviðafélagið Göng og brú ohf.

Fjárhæðin nam heildarstöðu láns ríkisins til félagsins, að meðtöldum verðbótum og áföllnum vöxtum.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið rekur þessa ráðstöfun í minnisblaði til fjárlaganefndar Alþingis sem var birt í dag.  

Nefndin óskaði eftir upplýsingum um hvaða fjármunir og eignir hefðu þegar runnið til félagsins og hvaða framlög væru fyrirhuguð. Ráðuneytið segir að aðrar ráðstafanir af þessu tagi hafi ekki verið gerðar.

Í svari ráðherra við fyrirspurn Ólafs Adolfssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sem var lagt fram á Alþingi 11. nóvember, kemur fram að höfuðstóll lánsins hafi numið rúmum 12 milljörðum króna, verðbætur tæpum 4,6 milljörðum og áfallnir vextir tæpum 37 milljónum. Ríkið nýtti sér heimild í lánasamningnum til að breyta kröfunni í hlutafé. 

Óljóst hve mikið verður greitt með veggjöldum

Samkvæmt minnisblaðinu hefur enn ekki verið gengið frá samningum við Göng og brú um framkvæmd tiltekinna verkefna. Því liggur ekki fyrir hve stór hluti kostnaðar við hvert verkefni verður greiddur með veggjöldum og hve mikið kemur í beinum framlögum úr ríkissjóði.

Innviðaráðherra og félagið undirrituðu í september viljayfirlýsingu um fimm verkefni. Þau eru samgöngumannvirki við Hornafjarðarfljót, Ölfusárbrú, Fljótagöng, Sundabraut og tvöföldun Hvalfjarðarganga. 

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab