Viðvörun í tölvunni kostaði hann rúman milljarð – Lögreglan leitar nú manns

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Mánudaginn 23. nóvember 2026 12:30

Maðurinn sem lögregla leitar að.

67 ára karlmaður í New York varð fyrir barðinu á ótrúlegri svikamyllu þegar hann var blekktur til að kaupa gullstangir fyrir níu milljónir Bandaríkjadala og afhenda þær ókunnugum manni úti á götu í Manhattan.

Maðurinn taldi sig vera að koma fjármunum sínum í örugga höfn en sá aldrei gullið aftur. Lögreglan í New York hefur nú birt myndir og myndskeið úr eftirlitsmyndavélum og óskað eftir aðstoð almennings við að bera kennsl á mann sem hún vill ræða við vegna málsins.

Bandaríski fréttamiðillinn Newser greinir frá málinu og vísar meðal annars til umfjöllunar New York Times.

Allt hófst með viðvörun í tölvunni

Svikamyllan hófst í mars árið 2025 þegar viðvörun birtist á tölvuskjá mannsins. Í kjölfarið komst hann í samband við einstakling sem sagðist starfa hjá öryggisfyrirtæki og fullyrti að fjármunir hans væru í hættu.

Manninum var talin trú um að hann þyrfti að breyta fjármunum sínum í gull til að verja þá fyrir óprúttnum aðilum.

Hann fylgdi fyrirmælunum og keypti gullstangir í nokkrum viðskiptum. Þegar upp var staðið hafði hann fest kaup á gulli fyrir samtals níu milljónir dala, rúman milljarð íslenskra króna.

Gullstangirnar voru á stærð við súkkulaðistykki en um var að ræða samtals tæp 70 kíló.

Mætti með gullið á götu í Manhattan

Þann 16. apríl 2025 mætti maðurinn á fyrirfram ákveðinn stað nærri gatnamótum West 81st Street og Broadway á Upper West Side í Manhattan.

Þar hitti hann mann sem átti að taka við gullinu og koma því í örugga geymslu, að maðurinn hélt

Hann afhenti manninum gullið, en sá síðarnefndi tók við því og gekk á brott. Hann skilaði aldrei gullinu og þá rann upp fyrir fórnarlambinu að hann hafði verið blekktur.

Lögreglan rannsakar málið sem stórfelldan þjófnað en enn hefur ekki tekist að hafa uppi á manninum sem tók við gullinu.

Svik fyrir milljarða

Málið er langt frá því að vera einsdæmi í New York.

Samkvæmt upplýsingum sem Newser vísar til hafa yfir 100 sambærileg svikamál komið upp í borginni þar sem fólk hefur verið blekkt til að kaupa gull og afhenda það svikahröppum.

Samanlagt tjón fórnarlambanna er sagt nema meira en 100 milljónum Bandaríkjadala, jafnvirði um 12 til 13 milljarða íslenskra króna.

Lögreglan hefur hvatt alla sem kunna að þekkja manninn á eftirlitsmyndunum eða búa yfir upplýsingum um málið til að hafa samband.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab