Sigurjón svarar fyrir viðskiptin: „Það er ekkert í þessu nema illvilji Moggans“

Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, hafnar fullyrðingum Morgunblaðsins um að hann hafi gefið rangar upplýsingar um sölu útgerðarfélagi sínu, Sleppa ehf, sem gerði út strandveiðibát. 

Morgunblaðið birti samning um riftun kaupanna og þar kemur fram að kaupverðið hafi verið aðeins 250 þúsund krónur sem hafi auk þess aldrei verið greitt. Sigurjón sagði hins vegar í viðtali við Vísi í fyrra að kaupverðið væri 16 til 18 milljónir króna. Morgunblaðið lætur að því liggja að um sýndarviðskipti hafi verið að ræða til að gera konunni kleift að veiða fyrir Sigurjón.  

Sigurjón hafnar þessu í viðtali við DV og bendir á að um yfirtöku mikilla skulda hafi verið að ræða: 

„Um var að ræða skuldsett félag og hugmyndin var að nýr eigandi myndi greiða upp skuldina við eigendurna. Þetta er dóttir vinar míns og ég ætlaði að gefa henni kost á að fara á strandveiðar, kaupa bátinn. Gerði samning við hana um að og félagið var skuldsett,“ segir Sigurjón og sendi gögn sem sýna að skuldir Sleppa er kaupin voru gerð nema 26 milljónum króna.

„Þetta var sala á skuldsettu fyrirtæki, en afraksturinn af útgerðinni átti eftir að ganga upp í að greiða skuldina á félaginu. Þetta samkomulag byggði fyrst og fremst á áralöngum vinskap og trausti,“ útskýrir Sigurjón og sakar Morgunblaðið um illan hug í málinu:  

„Þannig að það er ekkert í þessu nema illvilji Moggans,“ segir Sigurjón og bendir á að Morgunblaðið hafi ekki haft samband við sig við vinnslu fréttarinnar. „Það er alveg ljóst að það er verið að búa til einhvern skítastorm,“ segir hann. 

Hann greinir frá því í viðtali við Vísir.is í dag að ástæðan fyrir riftun kaupanna hafi verið sú að báturinn bilaði. Þar sem báturinn stóð ekki undir væntingum hafi samningnum verið rift. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab