Vilja hindra aðskilnað fjölskyldna fyrir brottvísun

Samtökin segja að börnum hafi verið komið í tímabundið fóstur á vegum barnaverndaryfirvalda í aðdraganda þvingaðrar brottvísunar þegar forsjáraðilar þeirra hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Ljósmynd/Colourbox

Barnaheill og UNICEF á Íslandi vilja að óheimilt verði að beita gæsluvarðhaldi í aðdraganda brottvísunar ef það leiðir til þess að barni sé komið í tímabundið fóstur á meðan forsjáraðili þess er í haldi.

Samtökin leggja til að ákvæði þess efnis verði bætt við 115. gr. útlendingalaga, sem fjallar um handtöku og gæsluvarðhald.

Tillagan kemur fram í sameiginlegri umsögn samtakanna sem birt var á vef Alþingis í dag. Umsögnin varðar frumvarp meirihluta allsherjar- og menntamálanefndar um að fresta því um eitt ár að brottfararstöð taki til starfa.

Kalla eftir vægari úrræðum

Samtökin segja að börnum hafi verið komið í tímabundið fóstur á vegum barnaverndaryfirvalda í aðdraganda þvingaðrar brottvísunar þegar forsjáraðilar þeirra hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald.

Þau skora á stjórnvöld að hætta þeirri framkvæmd þegar í stað og beita vægari úrræðum sem gera börnum kleift að dvelja með forsjárfólki sínu án frelsissviptingar.

Samtökin telja að börn á flótta eigi að fá að vera með fjölskyldum sínum nema aðskilnaður sé nauðsynlegur vegna öryggis þeirra eða líðanar. Þau ítreka jafnframt þá afstöðu sína að frelsissvipting barna í brottfararstöð brjóti gegn réttindum þeirra og hvetja Alþingi til að breyta lögunum þannig að börn verði ekki svipt frelsi fyrir það eitt að vera á flótta.

Gæsluvarðhaldsheimildir myndu gilda ári lengur

Eins og mbl.is greindi frá í gær gerir frumvarpið ráð fyrir að brottfararstöðin taki til starfa 1. desember 2027 í stað 1. desember í ár.

Samhliða myndu sex tilteknar heimildir til handtöku og gæsluvarðhalds samkvæmt útlendingalögum gilda ári lengur. Samkvæmt gildandi lögum eiga þær að falla brott þegar heimildir til vistunar í brottfararstöð taka gildi. 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab